Það er ríkjandi skattamisrétti á Íslandi

  • Ef tekjublað DV reiknar rétt upp úr álagningaskránni, þá sést hérna svart á hvítu hvað milljarðamæringar í skattaskjólum leggja til samfélagsins. Ekkert.
 
Mynd frá Andrés IngiSigmundur Davíð og frú
 
 
Þetta á sér þær skýringar, að fyrirtækin og þeir sem aðeins hafa tekjur af fjárfestingum greiða ekki útsvar. Þetta getur ekki komið neinum vinstri manni á óvart.

Þá greiða fyrirtækin og fjárfestar aðeins 20% í heildarskatta. Þá er miðað við nettótekjur en ekki brúttótekjur eins launamenn greiða sín 34% af.

M.ö.o. þessir aðilar geta samkvæmt skattalögum dregið frá tekjum sínum allann tilkosnað til fá sínar fjármagnstekjur.

Þar inni í rekstrarkostnaði eru ekki aðeins vaxtagjöld, heldur allur húsnæðiskostnaður, bifreiðakostnaður, símakostnaður og hvað eina sem launafólk verður að nota sínar eigin launatekjur til að greiða.

Fjárfestirinn greiðir heldur ekkert í lífeyrissjóði.

Launafólk greiðir fyrir utan beina skatta og virðisaukaskatta, í lífeyrissjóð um 15,5% af brúttólaunakosnaði hans og um 7% af sama stofni í tryggingagjöld.

Þessi gjöld eru umsamin laun milli samningsaðila sem notaðir eru til ákveðinna hluta sem snerta launafólk.

Aðferðin við meðferð þess fjár ræðst af skattamálum.Því ekki er talið eðlilegt að greiddir séu skattar af þessu fé fyrr en það nýtist hverjum og einum launamanni.

Fasteignagjöld eru í raun þjónustugjöld sem fasteignaeigendur greiða þar sem þeir eiga fasteignir. Ef um er að ræða atvinnurekendur njóta þeir iðulegast afsláttar á kostnað launafólks.

Það eru eðlilega hærri fasteignagjöld á húsnæði fyrirtækja samkvæmt gjaldskrám sveitarfélagann enda er þjónustan margfalt meiri við fyrirtæki heldur en íbúðir. En á móti eru afslættir mjög algengir.
 
Þá er algengt að íbúðir atvinnurekenda séu í eigu fyrirtækjanna rétt eins og bílarnir. Þar með rekstrarkosnaður einnig og kostnaður vegna styrkja til flokksins.

Hér er ég að tala um eikareksturinn, en ef eigandi er að störfum í hlutafélagi á hann að vera þar að störfum sem launamaður, en það er í raun undantekning ef ekki er farið í kringum það eins og hægt er.

mbl.is Embættismenn tekjuhærri en ráðherrar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað vita allri vinstri menn að fjármagnstekjuskattur fer ekki til sveitarfélaga, þeir höfðu heilt kjörtímabil með hreinan meirihluta en breyttu því ekki.

Er ríkið ekki hluti af samfélaginu????

Fjármagnstekjuskattur leggst á brúttó tekjur, ekki nettó eins og þú segir. Það er ekki hægt að draga frá tilkostnað.

Ef einhver fær húsnæði, bíl, og þess háttar til afnota frá fyrirtæki eru það skattskyld hlunnindi og viðkomandi greiðir af því skatt (tekjuskatt/útsvar).

Fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði eru hærri en á íbúðarhúsnæði.

ls (IP-tala skráð) 1.7.2016 kl. 15:22

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sammála ýmsu hér.  Sérstaklega skattbyrði láglaunafólks - sem ætti engin að vera að einhverju ákveðnu marki.  Óbeinu skattarnir ættu að nægja. 
Mig minnir að aðstöðugjaldið, 1% af brúttótekjum fyrirtækja, hafi verið lagt niður með skattalagabreytingunni 1981, en þetta aðstöðugjald rann til sveitarfélaga. 
Skipting skattatekna milli ríkis og sveitarfélags hefur amk síðan verið samningsatriði þeirra á milli.
RSK heldur svo grannt utan um þau hlunnindi sem þú nefnir; íbúðar- og bílahlunnindi.  Af þessu tvennu eru greiddir fullir skattar eftir mati skv. skattalögum.
Í rauninni sleppur enginn nema sá sem losnar við lífeyrissjóðsframlagið - en það er málaflokkur sem brýnt er að taka til endurskoðunar hvort sem er.

Kolbrún Hilmars, 1.7.2016 kl. 15:36

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

 Takk Kolbrún, þetta með hlunnindin er með ýmsum hætti og eru oftlega stórlega vanmetin hlunnindi sem er auðvelt að smjúga framhjá. En það eiga allir að greiða skatt af þessum sem tekjum. 


Það er varðandi skatta á fólki sem dregur fram lífið á litlum tekjum. Það greiðir allt venjulegt fólk skatta og allir fá persónuafslátt sem gengur þá upp í skattaskuld viðkomandi ef um skuld er að ræða. Breytir þá engu um hversu miklar tekjur hver og einn er með. Ef tekjurnar eru mjög lágar hjá einstaklingum dugar persónuafslátturinn til að greiða þessa skatta og jafnvel ríflega það.

Allir njóta skattaþrepanna hvort sem þeir eru á litlum tekjum eða miklum. Hálaunafólk fær mestan afslátt vegna þessara þrepa.

Kristbjörn Árnason, 1.7.2016 kl. 16:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband