Allt opið í báða enda

  • Þessi stjórnarsáttmáli, þ.e.a.s. það sem sést af honum minnir auðvitað á borgarísjaka
    *
  • Því aðeins 1/7 hluti hans er sjáanlegur almenningi og eða öðrum en þeim sem koma beint að málinu
  • Það má segja, að það sem birtist séu aðeins rúmlega kafla fyrirsagnir og engin veit hvað er í meginmáli textans.

brauðmola stjórnin 1

 

Þetta virðist vera einkenni þeirra stjórnarsáttmála sem Sjálfstæðisflokkurinn kemur að.

Ríkisstjórn með slíkan samstarfssamning fær iðulegast í byrjun forskot í þinginu.

En þetta færir einnig gamla valda flokknum sem teygir tengsl sín um allt, miklu sterkari stöðu í samstarfi með smærri flokkum.

Smá flokkarnir eru þá ekki með opinbera viðspyrnu möguleika sem þeim eru nauðsynlegir. Þeir fá þá einnig miklu minni möguleika á stuðningi frá þingmönnum annarra flokka á Alþingi, vegna þessarar leyndarhyggju.

Það er augljóst að meðreiðarflokkar valdaflokksins eru í miklu veikari stöðu en Framsókn var í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum.

Einnig virðist þegar grannt er skoðað, ævinlega gætt að því í þessum sáttmálum að skera ekki alveg á böndin við Framsókn og það sama á við þegar Framsókn hefur leitt samstarf við vinstri flokkanna.

En almennt eru stjórnmálar vinstri flokkanna miklu ýtarlegri á yfirborðinu en hér sést dæmi um.

En greinilegt er að gamli valdaflokkurinn er að gefa eitthvað eftir í mörgum málaflokkum sem hafa verið sígild baráttumál vinstri flokka á Íslandi. Hvað þessar fyrirsagnir svo þýða, veit nú enginn.


mbl.is Getur strandað á takmörkuðu fjármagni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband