Æ fleiri sjá gegnum skrum Framsóknar

  • Það er hárrétt mat, að boðskapur og stefna Framsóknar myndi verða mesti landsbyggðarskattur sem um getur á seinni árum.

  • En ekki bara það, heldur einnig verulegur auka skattur á láglaunafólk, einmitt fólkið sem hefur fengið stærsta skellinn í hruninu sem er fólk sem býr í leiguhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu.
Ef íslenska þjóðarbúið getur fengið einhverjar krónur út úr þrotabúunum er það vegna þess að ríkissjóður hefur lagt til þessara föllnu banka verulega fjármuni sem greiddir hafa verið með skattfé launamanna og því er eðlilegt að þeir fjármunir komi til baka í ríkissjóð.

Peningarnir verði þá notaðir til að greiða niður skuldir ríkissjóðs svo hægt verði að byggja upp félagskerfið að nýju og lækka skatta á launfólki. Næga styrki hafa hálaunamenn notið gegnum árin með lægri skattagreiðslum.

mbl.is Nánast jafnstórir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rafn Guðmundsson

sammála þér í þessu

Rafn Guðmundsson, 25.4.2013 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband