Eðlileg fyrirspurn

  • Guðlaug­ur Þór Þórðar­son, vara­formaður fjár­laga­nefnd­ar hef­ur beint spurn­ing­um til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með 13% eign­ar­hlut rík­is­ins í bank­an­um, þar sem m.a. er spurt hvort sal­an hafi mögu­lega falið í sér markaðsmis­notk­un.

arion banki

Því er eðlilegt að fulltrúi fyrir Bankasýsluna svari fyrirspurn þingmannsins.

En ekki sá starfsmaður ARION banka sem ber ábyrgð millistjórnanda í þessu máli. 

Sjaldan er auðvelt að vera vitur eftirá og gera síðan breytingar á breytni sinn er tekur mið af gefinni reynslu.

Sem sést best á þróun bankanna um þessar mundir. Þróun sem fer gegn vilja almennings í landinu. Allt virðist vera á þeirri leið sem áður setti samfélagið á hliðina 2008. 

Þessi jakkaklæddi drengur hleypur á sig er hann kallar gagnrýnina eftiráspeki og þykist geta gert lítið úr fyrirspurninni. Enginn sem ekki er innvígður í þennan banka gat vitað fyrirfram hvað bankinn ætlaði sér að gera.

Því verða gerendur málsins og fulltrúar þjóðarinnar í þessu máli að gera sér grein fyrir því að atferli bankans verður að standst gagnrýni eftirá. Þ.e.a.s. þegar sannleikurinn er kominn í ljós.

Það er morgunljóst, að svona vinnubrögð eru úrelt og fara gegn viðhorfi þjóðarinnar.


mbl.is Segir gagnrýni vera „eftiráspeki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband