Silki- yfirfrakki eða bitlingar fyrir flokksgæðinga

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna, kann að koma orðum að hlutunum.

Hann segir hugmyndir hægri stjórnarinnar vera ógeðfellda aðför að sjálfstæði Landspítalans ef sett yrði pólitísk stjórn yfir spítalann.

Slík stjórn yrði auðvitað bara einskonar silkihúfa enda engin þörf fyrir slíka stjórn, nema til að útvega rétt trúuðum aðilum bitlinga.

Er gæti einnig gert það auðveldara að útvista fjölmörgum verkefnum til réttra velvildarmanna.

Íslendingar þekkja þessar gömlu aðferðir hægri flokkanna úr sögunni. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var að hygla sínum mönnum.

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-grænna, sagði það vera ógeðfellda aðför að sjálfstæði Landspítalans að ætla að setja stjórn yfir spítalann. Hann gagnrýndi tillögur meirihluta fjárlaganefndar Alþingis þess efnis. Með því væri verið að setja „pólitíska…
RUV.IS
 

mbl.is Ógeðfelld aðför að Landspítalanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Getur einhver komið dæmi um að þessar stjórnir stofnan hafi nokkurn tíma gert eitthvað eða axlað einhverja ábyrgð

Löggildingarstofa (hljóp í burtu í heilu lagi þegar á bjátaði), Íbúðarlánasjóður (gat ekki ráðið framkvæmdastjóra svo ÁPÁ réði einhvern), Landsbókasafn, Fiskistofa osv. osv.

Grímur (IP-tala skráð) 26.5.2017 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband