Nú hlýtur að taka við viðskiptastríð

  • Almenningur hlýtur nú að sniðganga Bandarískar vörur.

Á Íslandi eru a.m.k. þrjú mengandi Bandarísk fyrirtæki og nú er engin ástæða til þess að taka á þessum fyrirtækjum með einhverjum silkihönskum.

Þetta ríki mengar mest allra ríkja að Kína undanskildu sem þó ætlar að standa við Parísarsamninginn.

Það var ljóst fyrir mörgum árum að Bandaríkin eru á fallandi fæti efnahagslega og fer stöðugt aftur í samanburði við önnur iðnríki.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fyrir stundu í garði Hvíta hússins í Washington að hann hefði ákveðið að draga Bandaríkin út úr Parísarsáttmálanum um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Ákvörðun hans tekur gildi strax…
RUV.IS
 

mbl.is Draga sig út úr Parísarsamkomulaginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það hefur alveg gleymst að skilgreina í verki, þennan svokallaða Parísar samning?

Það hefur gleymst að fókusera á hættulega NATO og NASA, sem dreifa með skipulögðum hernaðarflugmengandi hætti dauðans hætulegu eitri í ýmsum formum og verkum? Með sérútbúnum mengunarflugvélum, sem eru líklegast taldar vera einhverskonar "loftrýmiseftirlitsgæsla" yfir einstökum ríkjum út um allar himingeimsins trissur? Og ISIS aftökuútgerðir um allan jarðarheiminn?

Hvers konar vitleysa er það, að ætla að loka verksmiðjum vegna óskilgreindrar mengunar, sem kemur frá NATO og NASA eiturspúandi "eftirlitsflugvélum" hernaðarvarnarflugvélum heimsveldishertöku-glæpabanka/fjármálasvika-kauphalla heimsins? Drepandi saklaust fólk um alla jörð, á samviskulausan og skepnulegan fjölbreytilegan hátt?

Það kemst enginn hjá því að horfast í augu við blekkingarnar, og bullstaðreyndir á vegum þessa svokallaða Parísarsamnings um eitthvað óskilgreint.

Mengun af öllum toga er dauðans alvara.

Óheiðarlegt NATO/NASA blekkingarhernaðar háloftanna aftökubrölt er margfalt mengunarverkferli, og algjörlega óverjandi dauðans alvöruhernaður glæpaheimsveldistoppa-viðskiptaglæpastjóra alþjóðabankans einokandi og heimsrænandi.

Mannskepnurnar eru sumar hverjar sjúklega valdagráðugar og siðlausar. Og þeir sjúkustu hafa rænt og drepið mest!

Yfirstjórar heims eru ekki neinir englar, og síst af öllu eru þeir valdasjúkustu og siðblindustu stjórarnir heiðarlegir englar. Sjúkir valdaníðingar sem hafa valdarænt allt stjórnkerfið á jörðinni, með tilheyrandi hernaðarréttlætingum á skelfilegum skepnuskap gegn varnarlausum börnum og fullorðnum einstaklingum um alla jörð!

Siðblindusjúk mannskepnu-yfirvalds-stjórnsýslan er mesta og hættulegasta fyrsta stigs dauðans alvöru mengunin!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.6.2017 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband