8.10.2016 | 22:43
Samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar eiga eldri borgarar sem eru í sambúð ekki að fá neina hækkun á eftirlaunum
Í dag hef ég lesið afar óskýra orðsendingu frá ríkisstjórninni sem fjallar um væntanlega hækkun á eftirlaunum eldri borgara og hækkun á launum öryrkja.
Hvað þýðir þetta orðalag?
,,Eldri borgurum sem halda einir heimili verði tryggðar 300 þúsund krónur á mánuði frá 1. janúar 2018, enda hafi þeir ekki aðrar tekjur sem hafa áhrif á fjárhæð bótanna. Bæturnar hækki í 280 þúsund krónur um næstu áramót".
Hér er aðeins talað um þá eldri borgara sem búa einir í heimili. Ekki er minnst orði á þá sem eru í sambúð með öðrum. Þ.e.a.s. hjón.
Eiga slíkir aðilar ekki að fá neina hækkun? Þetta er a.m.k. afar loðið orðalag sem getur þýtt hvað sem er. Það er auðvitað ekki boðlegt fyrir stjórnvöld að senda slíkan texta frá sér.
Hækka framfærslu aldraðra og öryrkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
- Þeir sem eru 8 ára finnst það býsna hár aldur og að þeir hafi heilmikla reynslu enda á 3. ári í skóla.
* - Það var gríðarlegt að átak að rífa þjóðina upp úr dýi sem hún var sokkin í.
* - En margar hendur vinna létt verk, sem á Íslandi var launafólk , aldraðir og öryrkjar sem unnu afrekið.
Allann tímann vældu þeir sem voru búnir að keyra sig og fjölskyldu sína á kaf í skuldafeni löngu fyrir hrun og íbúðir eða raunar stórhýsi löngu komin á síðasta snúning í gjaldþrotameðferð.
Það var fólkið sem krafðist þess að þjóðfélagið kæmi og borguðu skuldir þeirra. Það venjulega og oftast ungt launafólk sem hafði látið glepjast af gylliboðum bankanna þagði þunnu hljóði og eiginlega skammaðist sín. Það beit á jaxlinn og setti undir sig höfuðið og herti sig í þrældómnum.
Það hafði nefnilega komið á daginn að það sem gamla settið hafði sagt um skuldsetningarnar var rétt. Fólkið sem þekkti þessar íslensku kreppur sem hafa ævinlega lagst á launafólk eins og mara á 10 ára fresti. Eða eins og veturinn í Múmindal.
Nú eru þegar farin að blikka ýmis varúðarljós í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það án þess að ýmislegt sem hafði látið undan síga í kreppunni hafi verið lagfært. Þótt þjóðin hafi ekki farið í stórfelldar skuldsetningar enn, er það ekki stjórnvöldum að þakka.
En RÚV birtir frétt frá Financial Times
Erlendir ferðamenn björguðu efnahag Íslands eftir bankahrunið en andrúmsloftið núna er farið að minna óþægilega mikið á góðærið í kringum 2007. Þetta er meginstef greinar sem birtist á vef Financial Times í morgun þar sem er meðal annars rætt við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, og nokkra stjórnendur innan íslensku ferðaþjónustunnar.
En þetta sauðsvarta íslenska launafólk þarf ekki að láta heims-blaðið segja sér neitt um það ástand sem nú er farið að glitta í.
Það er auðvitað morgunljóst að gömlu valdaflokkarnir kunna engin önnur ráð í efnastjórnun en þau sem framkalla sífelldar kreppur yfir Ísland.
Á þessum 8 árum, hefðu landsfeðurnir átt að vera búnir að læra að brauðmola stjórnlistin dugar ekki. Frjálshyggjan er að þrotum komin.
Landsframleiðsla á mann óvíða hærri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.10.2016 kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)