Gamla leyndarhyggjan

  • Þetta er gamalkunn aðferð Sjálfstæðisflokksins og raunar Framsóknarflokksins einnig
    *
  • Það er t.a.m. alveg 100% öruggt að þessi aðferð hentaði þessum flokkum fyrir kosningar 2007.

Þessir flokkar höfðu þá setið saman í ráðuneytum þjóðarinnar í meira en ártug og vissu um væntanlega holskeflu sem var að hellast yfir þjóðina.

Forystumenn þáverandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar vissu um væntanlegt hrun á Íslandi strax 2006. Öllu var haldið leyndu.

Það er næsta öruggt, að þessi skýrsla sem nú er höfð í felum hefði haft áhrif á kosningarnar í október.

Það var einnig fullkomlega óeðlilegt að rannsókn á þessum Panamamálum færu fram í fjármálaráðuneytinu, ráðuneyti Bjarna Benediktssonar sem var bendlaður við þessi mál.

Á það hefur verið bent í fjölmiðlum að Bjarni hefur reynt eins og hann getur að tefja fyrir opinberun þessara mála.

Eðlilegt hefði verið að fela Alþingi að annast þessa rannsókn en ekki hagsmuna aðila eins og ráðherrann er óneitanlega.

  • Hvers konar flokkur er ,,Björt framtíð" ef hún ætlar að láta þetta ganga yfir sig?
Skýrsla um umfang skattaskjólseigna Íslendinga hefur legið fyrir í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá því í byrjun október, um mánuði áður en gengið var til…
STUNDIN.IS
 

mbl.is Funda áfram um stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillingunni bjargað?

  • Sukk og svínarí

Þetta er íslenska stjórnarfarið eins og það hefur verið tíðkað frá öndverðu af gömlu valdaflokkunum á Íslandi.

Það er Framsókn og Sjálfstæðisflokkur sem eru þeir stjórnmálaflokkar sem hafa leitt allar ríkisstjórnir á Íslandi að undanskildri þeirri sem starfaði í 4 ár og varð að bjarga þjóðinni frá hruni. Vegna spillingar þessara flokka og vanhæfni.

Þessir flokkar hafa alltaf haldið að sér öllum spillingarspilum og gætt þess að þjóðin fengi ekki réttar og eðlilegar upplýsingar í gegnum Alþingi.

Einn stór aðili þessa máls sem er fjármálaráðherra og formaður stærri spillingarflokksins lét sína menn ganga í verkin til eyða sem flestum vegsumerkjum um Panama vansann.

Réttu vinnubrögðin hefðu átt að vera þau að Alþingi hefði átt að láta rannsaka þetta mál en ekki fjármálaráðherra sem sjálfur er innvinklaður í subbuskapnum.

Skýrsla um umfang skattaskjólseigna hefur verið tilbúin í fjármála- og efnhagsráðuneytinu frá því í byrjun október, en hefur ekki enn komið fyrir Alþingi eða verið gerð opinber með öðrum hætti. Sér­stakur starfs­hópur sem Bjarni…
KJARNINN.IS
 

mbl.is Einhugur um samstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. janúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband