Gengi krónunar hefur áhrif á olíuverð á Íslandi

 

  • Getur verið að ríkisstjórn Íslands hafi áhrif á gengi krónunnar með vinnubrögðum sínum.

 

Frá áramótum hefur gengi  íslensku krónunnar styrkst um rúm 10%, aðeins mismunandi eftir gjaldmiðlum. 

Þegar gengi íslensku krónunnar lækkar er verðlag á innfluttum vörum og þjónustu umsvifalaust hækkað. Vegna gengisþróunar – eins og það heitir gjarnan. 

En nú hefur gengið styrkst og þá hljóta menn að spyrja: Af hverju lækka þá ekki innfluttar vörur og þjónusta í verði? 

Það virðist enginn hafa áhuga fyrir gengi íslensku krónunnar í þessari kosningabaráttu og allra síst fjölmiðlar. Sem ættu auðvitað við þessar aðstæður að herja á þá sem halda uppi verðlaginu í landinu.

Einnig að hjóla í þá sem telja sig hafa einhverju eftirlitshlutverki að gegna í þágu almennings.  

  • Hið eðlilega væri að influttar vörur lækkuðu í verði um þessi 10% og þannig ykist kaupmáttur launafólks í landinu mjög verulega. 
    .
  • En ýmsir hópar atvinnurekenda halda uppi látlausum áróðri sem fylgir ákveðinni flokkslínu í pólitíkinni bæði í fjölmiðlum og t.d. í verslunum.
  • Það er engin tilviljun að þessi áróður er hafður uppi um þessar mundir, en nær væri að þessir aðilar létu vöruverð fylgja innflutningskostnaði á innfluttri vöru.

 


mbl.is Olía lækkar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband