Það er munur að hafa Ólaf Ragnar á fosetastóli

 

  • en ekki einhverja endemis lufsu sem ekkert getur!
    .
  • Skrifaði einn kunnur bloggari nú í sumar, maður sem telur sig vera vinstri mann og er fyrrum frambjóðandi Regnbogalistans í fremstu röð sem engu fylgi náði.
  • Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart þar sem forsetinn er kominn á kaf í pólitík og fylgir öðrum stjórnarflokkanna að málum. 

Eitt er víst, að hann stendur með sínum stuðningsmönnum sem eru félagar í LÍÚ ásamt stjórnarflokkunum.

Niðurstöður úr öllum málum sem vísað hefur til forsetans með beiðni um að hafna staðfestingu á lögum frá Alþingi hafa farið eftir hagsmunum Framsóknarflokks sérstaklega og einnig samkvæmt hagsmunum forystu Sjálfstæðisflokks.

Einnig hafa margir litið á hann sem eitthvert goð eftir Icsave atburðina  sem enn hafa ekki verið leidd til lykta. En hann hlýtur að hafa svikið marga af þessu fólki í tryggðum eftir þessa niðurstöðu.

Annað er einnig ljóst, að þetta er í eðli sínu geðþóttaákvörðun  segir einn fyrrum formaður  Sjálfstæðisflokksins, það eru engar stjórnskipulegar viðmiðanir sem gilda í þessum efnum.

M.ö.o. að allt það sem forsetinn hefur látið út úr sér í tilefni þessara einræðistilburða sinna hafa nákvæmlega enga merkingu og hann kominn í hring, þ.e.a.s. hringavitleysa og engin getur sagt eitt einasta orð.

 

  • Eitt sagði karlinn þó sem hægt er að vera sammála honum um en það er, að nú á haustþingi verður að mynda miklu meiri samstöðu um veiðileyfagjöldin heldur enn nú er reyndin. Bæði á Alþingi og með þjóðinni. 
  • Og forsetinn minntist ekki orði á skoðanakönnun eins og hann hefur jafnan gert áður. Hann kaus einnig að minnast ekkert á niðurstöður kosninganna um stjórnarskránna og niðurstöðuna um veiðileyfagjöld sem kosið var um. 
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fjallar um kvóta- og auðlindamál á Bylgjunni 13. maí 2012:

„Þar er um að ræða hvað þjóðin, eigandi auðlindarinnar fær í sinn hlut. Það er erfitt að hugsa sér stærra mál en það sem myndi vera eðlilegt að setja í þjóðaratkvæðagreiðslu ef að einhver hluti þjóðarinnar telur það mikilvægt.“

Hlustum nú á forsetann og skrifum undir hér:
http://www.petitions24.com/obreytt_veidigjald

20 þúsund vilja ekki lækka veiðigjöld:
http://skodun.is/2013/06/19/20-thusund-vilja-ekki-laekka-veidigjold/

Látum í okkur heyra: 
http://skodun.is/2013/06/18/latum-i-okkur-heyra-veidigjold-og-esb/

 


mbl.is Forsetinn staðfestir lög um veiðigjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband