6.4.2016 | 18:25
Ef fréttin er rétt sem fram hefur komið
- Þetta hefði aldrei gengið upp, nema vegna þess að Bessastaðabóndinn
hefur verið með í plottinu frá upphafi
* - Það er athyglisvert að Framsóknarmenn svíkja
formanninn sinn í tryggðum.
* - Þá hefur Sigurður Ingi ekki traust þjóðarinnar. Ekki frekar en Bjarni
- Hvers vegna kom forsetinn í veg fyrir að kosið yrði upp á nýtt?
* - Hvers vegna mátti þjóðin ekki mátti þjóðin ekki fá aðkomu
að þessum spillingarmálum?
* - Eru ráðamenn hræddir við nýja rannsóknarnefnd?
Það er óhjákvæmilegt að velta þessari spurningu fyrir sér. Eina haldbæra skýringin er sú , að forsetinn sjálfur vildi ekki að aðrir stjórnmálaflokkar kæmu að því verkefni að mynda ríkisstjórn á Íslandi.
Þetta virðist hafa verið hans persónulega ákvörðun, vegna hans eigin viðhorfa til stjórnmálaflokkanna.
Það einsdæmi sem hann sýndi, að kalla saman blaðamannafund eftir að Sigmundur Davíð fór úr húsi Bessastöðum sýnir auðvitað, á hversu veikum grunni þessi ákvörðun hans stendur.
Forsetinn heldur pólitíska áróðursræðu og er með alvarlegar ásakanir á hendur forsætisráherra. Hann segist hafa neitað að skrifa undir plögg sem forsætisráðherrann á að hafa verið með.
Þetta eru bara orð forsetans, þótt ég hafi ekkert traust á forsætisráherranum treysti ég þessum forseta ekkert betur. Það traustleysi mitt byggist bara á persónulegumm kynnum mínum á persónunni.
Síðan, koma þessar undarlegu skýringar sem ekki halda vatni. Er eiga víst að snúast um stóra málið sem er á borði fjármálaráðherra hefur verið í gangi í 5 ár.
Það mál hefur allan tíman verið samstarfsverkefni allra flokka á Alþingi og hefur verið í höndum sérfræðinga.
Þótt það kæmi til kosningar yrðu engar breytingar gerðar hvað það mál varðar.
Sigmundur Davíð er síðan búinn að mótmæla
þessum orðum forsetans.
*
Það standa bara orð gegn orði og enginn veit
hvor þeirra segir satt.
Menn eiga bara að trúa án þess að sannanir sjáist. Svona eins og í skattaskjólsmálum fjármálaráðherrans.
Kanski spilar hermálið hið nýjasta inn í málið, enn í ljós hefur komið að herinn er á leið til landsins enn á ný. Herinn er þegar byrjaðar á nýrri uppbyggingu alveg án þess að málið hafi verið lagt til kynningar eða afgreiðslu á Alþingi.
E.t.v. spilar Icesave- málið inn í myndina. Þrotabú Landsbankans hf í Bretlandi hefur þegar skuld sína vegna Icsave.Samkvæmt skilmálum í Svavarssamningum.
Bæði þessi huldumaður sem er enn forsætisráðherrann og forsetinn fóru í hráskinnaleik vegna þessa máls og sköðu hagsmuni þjóðarinnar. Þjóðin hafnaði mjög góðum samningum. Allt vegna kosningahagsmuna þeirra í væntanlegum kosningum.
Auk þess sem nú er komið ljós að þessi ríkisstjórn hefur þegar samþykkt að greiða 20 milljarða í aukavexti. Samningar um þær greiðslur liggja undir þagnarhjúp að hafa ekki verið bornir undir Alþingi til samþykktar.
Þetta voru a.m.k. ekki lýðræðisleg vinnubrögð hjá forseta Íslands að mínu mati. Þarna var greinilega verið að vernda ríkisstjórn útgerðarinnar og elítunar í landinu gegn vilja almennings á Íslandi.
Það væri eðlilegt að RÚV vandaði valið á jólasveinum til þess að vera álitsgjafi í jafn alvarlegum málum í dagskrá sjónvarps. Það var a.m.k. sérkennilegt að helsti sérfræðingur þjóðarinnar stjórnarskrármálum var ekki í þessum þætti. Það verður bara að segjast eins og er.
Á ekki forsetinn að segja af sér?
Þetta er mín skoðun.
Sjálfstæðismenn funda klukkan 18.45 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Facebook
Athugasemdir
Ef, það er auðvitað málið er það ekki?
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 6.4.2016 kl. 18:27
Þetta eru stór og ótrúlegt klúður. Þessi Panamamá eiga auðvitað eftir að setja allt á annan endan hér í landi og í Bandaríkjunum.
Kristbjörn Árnason, 6.4.2016 kl. 18:30
USA tekur á svona málum á einfaldan hátt, fólk er ásakað um skattsvik og brot á lögum, þar af leiðandi fer ekkert á annan endan í USA.
Kveðja frá Houston
Jóhann Kristinsson, 6.4.2016 kl. 18:54
Það kom fram góður punktur hjá Guðna Jóhannessyni í sjónvarpinu að núverandi stjórnarflokkar myndu jafnvel hagnast á því að kosið sé strax. Því eins og hann bendir á, að líklega muni koma fram mörg alvarleg Panamamál í sumar hjá fólki sem er í nánum tengslum við núverandi stjórnarflokka
Kristbjörn Árnason, 6.4.2016 kl. 19:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.