sjaldan veldur einn þá tveir deila

  • Í þessu tilfelli þjóðin annarsvegar og síðan fyrrum forsætisráðherra.
    *
  • Þjóðin hefur fellt sinn dóm, ef Sigmundur Davíð vill skaða

    Framsókn hangir hann sem formaður sem lengst. 

framsókn

 
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, 
 
KJARNINN.IS
 
 
Mér virðist Sigmundur Davíð tala eins og hann sé siðblindur að mínu mati kemur það fram í ræðum hans á þessum framsóknarfundum. Þetta er auðvitað mjög sorglegt.
 
Hann segist algjörlega saklaus af öllu misjöfnu sér ekkert athugavert við breytni sína. Ég er auðvitað ekki fær um að dæma um slíkt svo óyggjandi sé. 
 
Hann segir sjónvarpsmennina ljúga sem afhjúpuðu hann og hafi bara verið með leikrit til þess eins að eyðileggja Framsóknarflokkinn í gegnum hann. Eins það ætti að vera sérstakt áhugamál alþjóðlegra rannsóknar blaðamanna að eyðilegjja lítinn hægri flokk á Íslandi sem hefur enga alþjóðlega vigt.

Þá hefur þessi maður ítrekað sagt þjóðinni ósatt og lofað hlutum sem ekki hefur staðið til að standa við. Hann hefur haldið uppi óslitnum áróðri um eigin ágæti fyrir þjóðinni. Kosningaloforð sem bar á borð fyrir þjóðin stóð aldrei til að standa við.

En Framsóknarmenn kjósa auðvitað að trúa þessum manni og meðan svo er verður það stóra vandamál þessa flokks í tilefni af 100 ára afmæli hans.

Nú ætla þeir undir forystu Sigmundar Davíðs væntanlega að koma með nýjar loforðabunur fyrir næstu kosningar. Síðan er það ansi klént að þakka Framsóknarflokknum fyrir góða vinnu fyrri ríkisstjórnar.

Báðar þessar ríkisstjórnir hafa gert góða hluti en þessi seinni stjórn hefur einnig gert marga mjög alvarlega hluti, eins og að mismuna fólki alvarlega.


mbl.is Hafna fullyrðingum Sigmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband