Skattalækkanir hafa ekki lækkað verð á innfluttum vörum

  • Verslun á Íslandi er í raun vanþróuð atvinnugrein

Í gærmorgun fóru kaupmenn íslenskir í naflaskoðun

Til umræðu var á glæsilegri ráðstefnu samkeppnishæfni íslenskrar verslunar við erlendar verslanir sem skyndilega er farin að veita innlendri alvarlega samkeppni.

Við sem störfuðum í íslenskum samkeppnisiðnaði fengum að finna fyrir slíkri samkeppni erlendis frá eftir inngöngu Íslands í EFTA í byrjun árs 1970.

Þá var það sem íslensk verslun gekk í lið með erlendum aðilum og réðust með mikilli grimmd á íslenskan iðnað.

En það hefur verið ljóst í áratugi að innlend verslun er alls ekki samkeppnisfær við erlenda verslun.

Jafnvel nú hefur komið í ljós, eftir að ríkisvaldið hefur létt sköttum af íslenkri verslun, hversu veik þessi starfsemi er á Íslandi og erlendir aðilar eiga nú stóran hlut í íslenskri verslun.

Um helgina kom ég úr 40 daga sumarfríi á Lönguskerjum eða Tenerife og ég komst ekki hjá því að sjá hvað bensín kostar á bíla þar í landi. En líterinn kostaði þar innan við 0,8 evrur, þ.e.a.s. nálægt 97 krónum hver lítri. En Tenerife er úti í ballarhafi rétt eins og Ísland.

Á Íslandi kostar hver lítri 100 kr. meira eða um 197 krónur. Þarna er ekki um verulegan mun á flutningskostnaði að ræða, en væntanlega eru skattar á Íslandi á þessa vöru miklu meiri.

Verðlag á fatnaði og matvöru var u.þ.b. þriðjungur af verði sambærilegra vara á Íslandi og sá verðmunur skýrist ekki af sköttum. Sama má segja um verð á nýjum bílum.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Hafa lækkað verðið um 8-10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar segja að Katrín hafi gefið frá tækifærið að verða forsætisráðherra

  • Það er auðvitað bull að formaður VG verði í náinni framtíð forsætisráðherra og eða utanríkisráðherra.

Félagar í VG ganga ekki með slíkar grillur í maganum eða væntingar. Hafa tæplega áhuga á því vegna þess t.d. hvað það kostar í afslætti og gjörbreytingu á stefnu flokksins.

Það gerir andstaða VG við aðild Íslands að Nató og ESB. Nató hefur komið í veg fyrir slík hlutverk vinstrimanna til þessa. Ísland er í raun og veru ekki frjálsara land en þetta.

Þetta er allt lýðræðið á Íslandi og þetta er undir niðri stóra vandamálið við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Það verður trauðla mynduð ný ríkisstjórn á Íslandi svo eitthvert vit sé í, án þátttöku VG. Engir stjórnmálaflokkar treysta Pírötum.

Flokkarnir sækjast eftir flokknum í stjórn en sætta sig ekki við að flokkurinn beri ábyrgð á þessum ofangreindu ráðuneytum. Píratar eru svo sannarlega á sama báti og aðrir Nató-flokkar á Íslandi.

Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Allir flokkar að tala saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Satt er það, ríkið á að greiða skuldir sínar.

  • Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs  eins og fyrirbærið er kallað í umræðu hefð hægri manna á Íslandi
    *
  • Eru vangoldin laun ríkisins vegna starfsmanna sinna, óreiðuskuldir sem Davíð Oddsson sem forsætisráðherra byrjaði að safnaDavíð oddsson
    *
  • Ríkinu ber að skila í lífeyrissjóð opinberra starfsmanna þessum hluta af launum opinberra starfsmanna
  • Þetta fé er ekki eitthvað sem ríkissjóður ætlar að gefa opinberum starfsmönnum. Eins og heyra má frá hægri mönnum
    *
  • Opinberir starfsmenn hafa þegar unnið fyrir þessum launum sínum með störfum sínum
    *
  • Engir aðrir atvinnurekendur á Íslandi komast upp með að vanrækja þær skyldur sínar að skila á réttum tíma umsömdum launum starfsfólks þangað sem þær eiga að lenda
    *
  • Ég reikna með því að aumingja þingmaðurinn líti svo á, að hann vinni fyrir þeim hluta launa sinna sem vinnuveitanda hans ber að skila í lífeyrissjóð þingmanna
    *
  • Það er a.m.k. ljóst að vinstri menn vilja að ríkissjóður greiði skuldir sínar og að allir landsmenn taki þátt í því að halda uppi samfélaginu með sama hætti en ekki bara sumir.

mbl.is „Aldrei rætt um að lækka skuldir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn vill í raun óbreytt ástand í svávarútvegsmálum

  • Viðreisn vill framselja kvótann til 33ja ára
    *
  • Eftir 33 ár verða börnin mín á aldrinum 73 til 85 ára gömul
    *
  • Ég löngu dauður og gleymdur öllum.

Engar líkur eru á, að erfingjar núverandi sægreifa myndu ekki kasta eign sinni á aflaheimildir þjóðarinnar. Á grundvelli hefðarréttar eftir slíkan tíma. Þeir telja sig vera hefðarmenn.

Benedikt og Óttar

Viðreisn er varðstöðuflokkur um skattkerfi og hyglunarkerfi Sjálfstæðisflokksins.

Það eru allar kerfisbreytingarnar og frjálslyndið sem Viðreisn stendur fyrir.

  • Varðstaða um óbreytt þjóðfélag.
  • Varðstaða um auðmenn og sægreifa.
  • Ónýtt velferðarkerfi.
  • Um einkavædd sjúkrahús og skóla. 

Ketill skrækur fylgir Skuggasveini hvert sem hann fer.


mbl.is Finna hvar sársaukamörkin liggja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir vilja starfa með VG

  • Flokkar með stefnu og hugsjón
    *
  • Eru og verða alltaf vandamál fyrir aðra flokka eins og t.d. í íslensku flokkakerfi
  • Það er einnig ástæðulaust að reyna að gera lítið úr slíkri stefnufestu. 

Katrín Jakopsdóttir

Því það er aldrei auðvelt að sýna staðfestu.

Það er ekki að ástæðulausu að miðjuflokkarnir sæki það svo stíft að eiga samstarf við VG í ríkisstjórn.

Það er þeirra eini möguleiki til að hafa áhrif á Alþingi.

Stefnufesta flokksins er skýr og öllum ljós, kostur sem skiptir alla máli bæði aðra stjórnmálaflokka og almenning. 

Greinilegt er, að reynslulitlir og sessusjúkir stjórnmálamenn eru auðveld bráð fyrir Morgunblaðið sem hefur alla tíð lagt metnað sinn í að skapa sundrungu meðal stjórnmálamanna sem eru blaðinu ekki þóknanlegir.

Aumkunnarverður er Össur um þessar mundir sem ekki hafði vit á því að finna sér annað starf fyrir síðustu kosningar.

Hann og mágkona hans eiga reyndar helstu sökina á hvernig farið er fyrir Samfylkingunni. 

Össur er svo sannarlega með stjörnu í brók og á að hafa vit á því að skammast sín og hætta að reyna að skaða flokk sinn.


mbl.is Telja VG vera vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilegur stefnumunur

  • Eðlilega hefur VG aðra stefnu og viðhorf en miðjuflokkarnir svo ekki sé minnst á hægri flokkanna.
    *
  • Ef ekki væri flokkurinn óþarfur.

alþingishúsið

Það er einnig ljóst að í samstarfi með VG verða miðjuflokkarnir miklu áhrifameiri enn í samstarfi með gamla valdaflokknum.

Flokknum sem er sífellt fyrir hagsmuni útgerðarinnar, peningaaflana og fyrir fyrri störf í nær samfellt í 70 ár.

Væntanlega eru það félagsleg viðhorf VG sem eru öllum flokkum erfið. Með þessu sannar VG gildi sitt sem stjórnmálaflokkur á Íslandi sem  krefst þess að störf Alþingis og ríkisstjórna taki mið að þörfum fólks ó landinu. 


mbl.is Fjórir af fimm flokkum samstíga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimboð á heiðarbýlið

Það er greinilegt að það eru ekki sjónarmið samvinnumanna sem ráða ferðinni í ranni Framsóknarflokksins á þessu landshorni. 

 

Greinilegt er að klofningurinn í þessum 100 ára flokki er staðfestur enda er flokkurinn búinn að gera sig óþarfan í íslensku samfélagi. 


mbl.is Sigmundur boðar til veislu nyrðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband