Færsluflokkur: Íþróttir
20.10.2013 | 16:11
Náttúruleg skíðabrekka
Nú er bara að bíða eftir snjónum því þetta virðist vera alveg rennislétt skíðabrekka í Kinnunum. Upplögð fyrir skósmiði og annað fólk
Ákaflega sjaldgæfir atburðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.9.2013 | 15:49
Eitt dauðsfall á dag
- Alþjóðasamband verkalýðsfélaga (ITUC) hefur um nokkura missera skeið gagnrýnt stjórnvöld í Qatar og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) fyrir að samþykkja skelfilegan aðbúnað verkamanna sem vinna að mannvirkjagerð vegna HM 2022 sem fram fer í Qatar eftir níu ár. .
- Um það bil 1200 þúsund farandverkamenn vinna í Qatar um þessar mundir réttindalausir og við skelfilegar aðstæður.
Óbærilegur hiti dró yfir 30 nepalska verkamenn til dauða í júlí auk fjölda manna sem farast í hverjum mánuði vegna þess að öryggismál eru í ólestri. Að meðaltali deyr einn verkamaður á dag alla daga ársins vegna lélegs aðbúnaðar starfsmanna í Qatar. Það þýðir að milli 3 og 4000 verkamenn munu látið lífið við störf í Qatar áður en fyrsta flautið gellur á HM 2022. Sharan Burrow framkvæmdastjóri ITUC segir þessa stöðu óásættanlega með öllu og gegn þessu ástandi verði barist.
Framkvæmdastjórn FIFA kemur saman í Zurich í næstu viku til að ræða möguleika á því að færa heimsmeistarakeppnina yfir á vetrarmánuðina til að heilsu og öryggi leikmanna og áhorfenda sé ekki stefnt í hættu. Engin áform eru hins vegar uppi um að ræða öryggi þeirra verkamanna sem byggja leikvangana í Qatar á fundinum í Zurich. Það harmar ITUC.
ASÍ-UNG hefur ítrekað óskað eftir afstöðu KSÍ til þess að mannréttindi eru brotin á verkafólki sem vinnur við uppbyggingu knattspyrnumannvirkja í Qatar vegna HM 2022. KSÍ hefur ekki séð ástæðu til að svara.
(Fréttabréf ASÍ)
Fyrsti leikurinn hjá Bendtner með Arsenal í rúm tvö ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2013 | 20:26
Flottur og heilsteyptur persónuleiki
Ég efast ekki um að Hörður Björgvin Magnússon á eftir að standa sig vel í framtíðinni sem knattspyrnumaður enda yfirvegaður að eðlisfari. Heiðarlegur og framsækinn.
Hörður: Rifja upp gamla takta úr Fram-liðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 15.8.2013 kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)