Færsluflokkur: Kvikmyndir

Enginn er hafinn yfir gagnrýni, allra síst hálaunaður bankastjóri ríkisbanka

  • Furðulegur hroki í bankastjóranum þegar hann segir orðrétt:

„Stjórnmálamenn eiga heldur ekki að kalla eftir einstökum rannsóknum frá eftirlitsaðilum. En FME, ef þeir telja ástæðu til að gera athugun á þessu þá er sjálfsagt að fara í gegnum það. En við skulum muna eftir því að leikkerfin sem við störfum eftir eru sett af Alþingi og það gengur út á það að stjórnmálamenn séu ekki að fara beint inn í málin“.

Þótt alþingismaður segi þessa skoðun getur það ekki talist vera afskipti af rekstri bankans.

Landsbankinn

 

Það er auðvitað fullkomlega eðlilegt að alþingismaður lýsi yfir vilja sínum um, að ákveðnir starfshættir í ríkisbankanum séu skoðaðir.

Jafnvel götusópararnir sem halda Austurstrætinu hreinu hafa fullan rétt á að gera kröfu um að sklík skoðun fari fram eða hver sem er. Enda geri hann málefnalega grein fyrir slíkri kröfu sinni.

En það eru auðvitað miklu meiri líkur á því að hlustað sé á þingmanninn. 

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir gagnrýni Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar, á sölu bankans á hlut í Borgun vera óréttmæta. Stjórnmálamenn eigi ekki að kalla eftir rannsóknum eftirlitsstofnana á einstaka…
RUV.IS
 

mbl.is Hafna ásökunum Árna Páls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband