7.10.2013 | 18:01
Það er ótrúlega hljótt um 5 ára afmæli hrunsins hér á Mbl.
- Ákveðnir aðilar reyna hvað þeir geta, að kenna öðrum hrunadansinn á Íslandi
- En mér finnst út í hött að kenna ástandi í efnahagsmálum erlendis og jafnvel í Asíu um hvernig fór á Íslandi.
. - En þessi grafiska mynd segir nánast allt um ástæðu hrunsins sem er hin gríðarlega skuldasöfnun þjóðabúsins.
Vert er að benda á þá staðreynd að allt frá 1995 var allt gert til að veikja ríkisvaldið og sagt að atvinnureksturinn stjórnaði sér best sjálfur í andrúmslofti frjálshyggjunnar og efnahagsstjórnin átti þannig að verða heilbrigð á sjálfvirkan hátt. M.ö.o. Hin bláa hönd .
- Þannig átti atvinnulífið að skila þjóðinni allri hámarks hagnaði
En það er t.d. eftirtektarvert, að á þessum tíma hékk atvinnureksturinn meira og minna í pilsfaldinum á ríkisvaldinu. Þ.e.a.s. Pilsfaldakapitalismi varð allsráðandi og menn hættu að leggja til eigið fé í fjárfestingar í atvinnulífinu. Fjárfestingar voru allar fyrir lánsfé og fyrirtæki yfir skuldsett.
Það er rétt að stjórnvöld brugðust skyldum sínum, þau vissu um kollsteypuna strax 2005 sem var óflýanleg. Þessari snjóhengju var haldið leyndu fyrir þjóðinni og fyrir stjórnmálamönnum almennt.
- Fólk gékk til kosninga 2007 án þess að vitað af óveðurskýinu. Foringjar gömlu stjórnarinnar sem vissu um komandi martröð fóru í felur
- .
- Að mínu viti sviku þessir menn þjóðina
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:07 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.