13.10.2013 | 00:38
Greindur og sterkur persónuleiki
Það er greinilega meira spunnið í þessa Malala Yousafzai en flesta á hennar aldri. Hún leyfði sér að setja ofaní við sjálfann friðarverðlaunahafa Nóbels síðan fyrir 4 árum. En Malala hvatti Obama Bandaríkjaforseta til að hætta loftárásum eða drápsferðum með ómönnuðum flugvélum á fundi þeirra í gær.
Ætli hún sé fyrsta persónan sem lætur þennan karl heyra með tveim hrútshornum?
Enn allt stopp í Washington | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 17:31 | Facebook
Athugasemdir
Henni verður áreiðanlega ekki boðið í Hvía Húsið aftur meðan Obama hefur lyklavöldin.
Kveðja frá Houston.
Jóhann Kristinsson, 13.10.2013 kl. 16:49
Varla stjórnar Obama Bandaríkjunum? Spurning hver stjórnar?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.10.2013 kl. 17:37
Því miður þá stjórnar Óbömmur.
Kveðja frá Houston.
Jóhann Kristinsson, 13.10.2013 kl. 19:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.