15.10.2013 | 14:25
Gengisfelling í apríl?
- Þá hefur Bjarni Benediktsson lýst því yfir við erlenda fréttaveitu að höftin verði afnumin innan sex mánaða.
Nú þá verða launamenn greinilega, að hafa verulegar áhyggjur af mikilli gengisfellingu á krónunni innan sex mánaða. Það hefur lengi legið fyrir að aðferð Sjálfstæðisflokksins og helstu fjárfesta sem hafa tjáð sig um þessi mál hafa viljað fara í afnámið með verulegri gengisfellingu sem þýðir verulega kaupmáttarrýrnun og eignarýrnun hjá launafólki.
- Þetta segir Bjarni í viðtali við Bloomberg fréttastofuna, þar sem hann er staddur í Lúxemborg.Ef hægt er að samrýma væntingar allra hlutaðeigandi aðila, þá ætti að vera hægt að leysa þetta innan árs, jafnvel innan sex til níu mánaða,
- Gamla aðferðin sem þessi flokkur hefur jafnan ofarlega í skúffu sinni. Leiftursóknin gamla.
Hefur ríkisstjórnin frestað nóvembermánuði? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.