22.2.2014 | 11:40
Dæmigerður baksamningur ASÍ við SA
Hin þægu þý, er jafnan þægilegast að hnoða
- Er sýnir ljóslega hvernig ASÍ vinnur gegn þeim félögum innan sambandsins sem reyna að sýna einhvern dug í kjarasamningum til að ná meiri árangri en þau duglausu.
. - En samtök atvinnurekenda hafa einmitt leikið þann leik árum saman að etja saman félögunum innan ASÍ og tryggja hag Duglausa sambandsins í baráttunni við baráttufélögin.
. - Atvinnurekendur hafa einmitt notað þá samningstækni, að þeir byrja á því að binda Duglausu deildina og látið hana síðan vinna með sér.
Í frétt Moggans segir einmitt:
Við reiknum með að þegar niðurstaða kosninga um þennan viðauka liggur fyrir hjá félögunum sem felldu, þá verði í beinu framhaldi gengið frá sambærilegum samningum við þau félög sem samþykktu.
Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðinu í dag um hækkanir orlofs- og desemberuppbóta í nýju kjarasamningunum. SA hafa rætt við félög sem samþykktu desembersamningana um með hvaða hætti verði staðið að þessu.
Meiri hræsni hef ég sjaldan heyrt en þessi orð:
Við erum í sameiginlegri vegferð með verkalýðshreyfingunni á almennum vinnumarkaði og því er mikilvægt að þeir samningar séu í sama tímaramma.
Samtök atvinnurekenda hafa ASÍ félögin í bóndabeygju kredit kortanna og okur lánskjaranna í landinu. Þetta væri ekki hægt ef lögin frá maí 1983 væru afnumin.
ASÍ getur auðveldlega losað sig undan helsi þeirra ef vilji til þess væri fyrir hendi þar á bæ.
Fá sambærilegar viðbótarhækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:16 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.