26.2.2014 | 13:46
Kjördæmapot forsætisráðherrans
- Á meðan almenningur hamast á forsætisráðherra og ráðherrum hans potar hann í sínu kjördæmi sem aldrei fyrr
Á þessu kjörtímabili hefur 205 milljónum verið ráðstafað í verkefni frá forsætisráðuneytinu.
Samkvæmt Sigurði Má Jónssyni, upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins er hér um átaksverkefni að ræða, atvinnuskapandi og er þessum fjármunum beint í farveg á uppbyggingu menningarminja. Þetta eru peningar sem alla jafna er ekki sótt um heldur ráðstafar ráðuneytið sjálft út þessum peningum í átaksverkefni sem ráðuneytið telur atvinnuskapandi.
Athygli vekur að tæplega helmingur alls fjár sem hefur verið deilt út í þessum málum, samkvæmt svari forsætisráðherra við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, fer í kjördæmi ráðherrans. Af 205 milljónum er 97 milljónir áætlaðar í NA kjördæmi í alls 10 verkefni.
Verkefnin sem um ræðir eru:
- Hús leikfélags Dalvíkur (Ungó) (10 millj. kr.).
- Lúðvíkshús í Neskaupstað (10 millj. kr.).
- Steinsteypt fjárrétt í Norðfjarðarsveit (2 millj. kr.).
- Veghleðslur á Breiðdalsheiði (5 millj. kr.).
- Gamla apótekið á Akureyri, Aðalstræti 4 (15 millj. kr.).
- Kvíabekkur við Húsavík (10 millj. kr.).
- Gæruhúsið: Flutningur frá Akureyri til Siglufjarðar (20 millj. kr.).
- Stríðsárasafnið á Reyðarfirði (6 millj. kr.).
- Skipasmíðastöð Austurlands (15 millj. kr.)
- Þverá í Laxárdal (4 millj. kr.).
Tæplega 29 þúsund undirskriftir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.