30.5.2014 | 22:41
Flugvallarmál ekki lengur kosningamál
- Flestir frambjóðendurnir sögðust treysta flugvallarnefndinni, sem er undir stjórn Rögnu Árnadóttur fyrrverandi ráðherra, til að móta framtíðartillögur um flugvöllinn í Reykjavík og skilar af sér niðurstöðum í lok árs.
Halldór Sjálfstæðisflokki treystir á Rögnunefndina rétt eins og Dagur í Samfylkingunni. Sóley fyrir Vinstri Græna treystir á Rögnu ásamt Bjartri framtíð.
En fulltrúar Oddvitar Framsóknar og flugvallarvina, Alþýðuflokksins og Dögunar sögðust allir vilja hafa flugvöllinn á sama stað.
Þá varð fulltrúi Framsóknar sér til skammar varðandi moskumálið en einnig með þeim málflutningi sem hún viðhafði um múslima.
Að öðru leiti fannst mér oddvitar flokkanna standa sig vel í þessum umræðum og voru vel málefnalegir.
En auðvitað finnst manni alltaf sinn maður vera bestur eins og gengur.
Dagur treystir Rögnunefndinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.