- Það eru auðvitað samtök atvinnurekenda sem eru að stöðva fyrirtæki í hundraða vís, með því að senda félagsmenn Starfsgreinasambandsins í verkfall.
- Léttur og klénn út úrsnúningur við spurningu fréttamannsins RÚV.
Auðvitað geta samtök ferðaþjónustunnar samið og gert vinnustaðasamninga, gætt sig síðan á því til framtíðar framselja ekki samningarétt sinn til 5 manna kjara-nefndar samtaka atvinnurekenda.
- Ferðaþjónustufyrirtækin geta auðveldlega gert vinnustaðasamninga er gilti t.d. frá 1. maí sl.sem geta heitið starfsheita- og eða bónussamningar gegn því að Starfsgreinafélögin fresti verkfalli hjá þessum aðilum.
Þá yrðu fyrirtækin að ganga að því og tryggja, að laun ófaglærðs fólks í greininni munu ekki vera lægri í dagvinnu en kröfur Starfsgreinasambandsins ganga út á.
Þetta er hægt með slíkum samningum án þess að fara á skjön við stefnu fimm manna miðstýringa- og samninga-nefndar Samtaka atvinnurekenda.
Á móti geta fyrirtækin krafist þess að starfsfólkið fari á námskeið t.d. yfir vetrartímann þar sem inn-takið taki mið af störfum fólks í ferðaþjónustu.
Fólkið fengi þá eitthvert starfsheiti sem fengi sinn sess í kjarasamningum til framtíðar. Þetta er auðvitað eini vænlegi kosturinn í stöðu þessara fyrirtækja.
Hinn kosturinn er auðvitað sá, að láta fimm manna samninganefnd samtaka atvinnurekenda keyra fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki í þrot vegna þvergirðingsháttar..
Leikskólar verða opnir á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:57 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.