16.6.2015 | 17:42
Það er rétt, samfélagsmiðlar hafa breytt stjórnmálunum
- Breytingarnar eiga eftir að verða miklu meiri en nú er, allt vegna tilkomu samfélagsmiðlanna.
Nú komast stjórnmálamenn ekki upp með að segja almenningi ósatt, eins og hægt var á fyrri árum. Jafnvel fyrir yfir hrun komust stjórnmálamenn upp með lýgina, en ekki lengur.
Í hugum mjög margra er 17. júni nánast heilagur dagur vegna þess að hann er fæðingadagur Jóns Sigurðssonar. Hann er kallaður þjóðhetja íslensku þjóðarinnar.
En síðan spyr maður:
- Þjóðhöfðingi hverra er Jón Sigurðsson? Jú, auðvitað yfirstéttarinnar sem valdi hann dauðan til þessa hlutverks.
* - Jón Sigurðsson var aldrei talsmaður íslenskra öreiga. Hann lét sem hann sæi ekki þá stéttlausu á Íslandi.
Á þeim tímum sem þessi maður bjó í Kaupmannahöfn var mikil umræða um þá fátæku sem lifðu engu sældarlífi í borginni. Félagslega þenkjandi fólk bar uppi umræðu um að huga yrði að hag þeirra stéttlausu í Danmörku.
Það hefur auðvitað ekki hentað vinsældum Jóns meðal heldra fólks á Íslandi að gerast talsmaður vinnumanna í sveitum og eða hornkarla - og kerlinga á Íslandi.
Jón hefur aldrei verið þjóðhetja alþýðunnar á Íslandi.
Vert er að benda á þessar mikilvægu og merkilegu upp-lýsingar Dúnu Kristmundsdóttur um áhugaleysi á stöðu karla fyrir rúmum hundrað árum.
Hún sagði frá þessu í morgunútvarpinu og er með kenningar um hvers vegna staða þessara karla var svona veik.
Af því á morgun er 17. júní er vert að vekja athygli á skoðunum Dúnu um stöðu vinnumanna í sveitum. Hún segir að 40% karla á Íslandi hafi fengið kosningarétt 1915 rétt eins og konur við 25 ára aldur. Enginn hefur áhuga á þeim vinkli.
Hver voru viðhorf Jóns Sigurðssonar í réttindamálum sauðsvartra á Íslandi? Því er auðsvarað, þau voru engin.
Þetta kemur fram í rannsóknum Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur doktors í mannfræði við Háskóla...
Samfélagsmiðlar hafa breytt mótmælum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt 17.6.2015 kl. 09:03 | Facebook
Athugasemdir
Og nú er hetja alþýðunnar og forsprakki mótmælanna myndlistaspíra sem vantar athygli. Í erfiðri lífsbaráttu búandi í einbýlishúsi á Seltjarnarnesi og gift flugstjóra. Já það er margt bölið...
Hvumpinn, 16.6.2015 kl. 18:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.