Það er nauðsynlegt að minna reglulega á hrokafulla embættismenn

  • Það er mikilvægt að skoða það hvenær opinberir embættismenn skjóta langt yfir markið og fara með algjört fleypur.
    *
  • Ekki er ólíklegt að Ólafur Ragnar hafi farið með svipað bull á erlendum vettvangi trekk í trekk. Eins og ,,Silfur Egils" birti á ,,Eyjunni" og sjá hér fyrir neðan.

    6956_585309398156997_2047864523_n
  • Eitthvað hafa vinsældir hans minnkað á erlendri grundu og tekur hann helst til máls í ríkjum að mér finnst sem ekki eru viðurkennd sem lýðræðisríki.

  • Þetta er býsna athyglisvert þar sem hann fékk mjög alvarlegar ávítur frá rannsóknanefnd Alþingis fyrir þjónustulund sína við útrásarvíkinga. Síðan kaus hann að hunsa þær ávítur algjörlega og komst upp með það.

Silfur Egils

Ólafi Ragnari Grímssyni þykir óþarfi að forsetaembættið setji sér siðareglur og það má svosem vel vera – eins og staðan er vitum við ekkert um hvernig næsti forseti hugsar sér valdsvið sitt eða hlutverk.

En það var ekki hik á honum þegar hann tók saman íslensku boðorðin sem hann þróaði á tíma útrásarinnar – þessi útgáfa er úr fyrirlestri hjá Sagnfræðingafélaginu sem forsetinn hélt 10. janúar 2006.

Í raun má segja að þarna sé að finna hinn eiginlega hugmyndagrundvöll útrásarinnar, það var Ólafur Ragnar sem þróaði hann öðrum fremur og einnig orðfæri hennar:

„Í fyrsta lagi vinnusemi sem ef til vill er arfur frá samfélagi þar sem allir þurftu að leggjast á árar, bæði bændur og sjósóknarar, og ekki var spurt um tímafjölda þegar lífsbjörgin var í húfi.


Í öðru lagi áhersla á árangur frekar en feril ákvarðana, að ganga beint til verks og ljúka því á skömmum tíma, spyrja hvenær frekar en hvernig og láta sér ekki vaxa í augum þótt tíminn sé naumur.

Í þriðja lagi að eiga auðvelt með að taka áhættuna, að þora þegar aðrir hika, kannski vegna þess að lífi sjómannsins fylgir jafnan hætta og útrásin er eins konar róður á ný mið.


Við vitum líka að ætíð er hægt að hverfa aftur heim til Íslands ef illa fer í leiðangrinum og eiga hér hið besta líf því öryggisnetið sem velferðar-samfélagið veitir okkur tryggir öllum sama rétt til menntunar og umönnunar óháð efnahag.

Athafnamenn í sumum öðrum löndum verða hins vegar oft að leggja velferð fjölskyldunnar á vogarskálar áhættunnar.


Í fjórða lagi að flækjur skrifræðisbákna hafa aldrei þvælst fyrir okkur Íslendingum; við erum vön að eiga beint við einstaklinga.


Kannski hefur smæðin blessunarlega komið í veg fyrir að virkisveggir skrifræðis risu hér; við höfum einfaldlega ekki haft mannskap til að hlaða þá.


Í fimmta lagi hin ríka áhersla á að treysta hvert öðru, að orðheldni sé mikil dyggð, enda formlegir samningar oft óþarfir í litlu samfélagi.

Það gerir fólki kleift að vinna saman og ná árangri hraðar en þeir sem vanist hafa skriflegri og flókinni umgjörð um samstarf áður en verkið sjálft er hafið.


Í sjötta lagi hve auðvelt er að mynda samstarfshópa sem stefna að sama marki, að skapa iðandi keðju bandamanna í ákvörðunum og ná þannig forskoti á fulltrúa hinna stóru sem bundnir eru af þunglamalegu og flóknu kerfi.


Í sjöunda lagi hinn íslenski athafnastíll þar sem stjórnandinn sjálfur er í fremstu röð, líkt og skipstjóri í brúnni sem deilir örlögum og áhættu með áhöfninni.


Fyrirtækin öðlast svipmót frumkvöðlanna, persóna hans eða hennar verður ráðandi afl og slíkt stuðlar að ábyrgð og forystu í ríkara mæli en þar sem stjórnendur standa í skjóli af stærri heildum.


Í áttunda lagi arfleifðin sem ég nefndi í upphafsorðum, landnámið og tími víkinganna, sem færði okkur fyrirmyndir, hið djúpstæða viðhorf að sá sem heldur á ókunnar slóðir verðskuldi heiður, að leggja á hafið og nema lönd færi virðingu og sóma.


Athafnamenn okkar tíma eru ærið oft metnir á slíkan kvarða og litið á þá sem arftaka hefðar sem á sér rætur í upphafi Íslandsbyggðar.


Í níunda lagi og einnig þar eru tengslin við forna tíma skýr, Eddukvæðin, Hávamál: „Deyr fé,/ deyja frændur,/ deyr sjálfur hið sama./ En orðstír / deyr aldregi / hveim er sér góðan getur.“


Við vitum að mannorðið er dýrmætara en flest annað og slík hugsun er vænlegra leiðarljós um ókunna vegu á heimsmarkaði en regluverk eða flókin vegakort sem aðrir hafa samið.


Það dugir Íslendingum lítt til sæmdar að brjótast áfram í öðrum löndum með aðferðum sem eru vafasamar því orðstírinn kann að tapast í slíkri för.

Í tíunda lagi áherslan á sköpunargáfu; virðing sem hinn frumlegi nýtur á heimaslóð og öndvegið sem skáldin sátu forðum hafa fylgt okkur um langan veg.


Orðið athafnaskáld er lýsandi dæmi um hvernig þessi hugsun hefur fengið gildi í samtímanum. Þeim sem eru skapandi í hugsun, móta nýjan texta, nýja reynslu, nýtt verkasvið, nýjan athafnavöll er skipað í virðingarsess.“

 
 
 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband