19.2.2016 | 16:46
Baktjaldasamningur við stéttarsamband bænda en ekki við almenning.
- Það er óhæfa að styrkja eina atvinnugrein umfram aðrar atvinnugreinar á kostnað launafólks.
Ég er viss um að launafólk á SV horni landsins vill styðja dreifðar byggðir, þ.e.a.s. alla íbúa þessara byggðarlaga en ekki bara suma.
Samkvæmt þessum samningi á að skilja þá íbúa eftir sem búa við kröppustu kjörin í dreifðum byggðum, fólkið sem er á skíta launum. Áfram skulu þeir vera undir hælnum á bændum.
Þetta er ekkert réttlæti,svona samning á auðvitað að bera undir þjóðina og hafa annann valkost sem er að styðja við almenna byggð á afskekktum svæðum. en ekki fyrirtæki sérstaklega eins og sveitabýli.
M.ö.o. alla einstaklinga sem búa á afskekktustu búsvæðunum en ekki bara suma.
Skattgreiðendur sem eru að mestu launafólk eiga enga aðkomu að þessum samningum.
Þetta er eitthvað sem gert er bak við tjöldin í andstöðu við flesta íbúa landsins.
- Það er morgunljóst að þessi samningur er ekki gerður til að styrkja byggð í landinu sérstaklega, hér er verið að styrkja búskap og afurðarstöðvar bænda.
Það hefði verið eðlilegt að gera eitthvað til þess að styrkja almenna byggð í mesta dreifbýli landsins.
Þetta er alls ekki þannig samningur, það er verið að styrkja þær fjölskyldur sérstaklega sem eiga lögbýlisjarðir. Er þá sama hvort býlið er í Mosfellssveit eða á Melrakkasléttu.
Hvers á fólk að gjalda sem býr í dreifðustu byggðunum og á ekki bújarðir eða er ekki í búrekstri en dregur fram lífið með daglaunavinnu.
Einmitt eina fólkið sem greiðir fulla skatta í þessum byggðum og útsvar. En það gera bændur ekki. Þeir greiða nánast enga skatta.
Það á að hætta að styrkja búskap það á að styrkja fólk sem er tilbúið að búa við ysta haf og efst til fjalla.
Það óhæfa að styrkja landbúnað sem er við stærstu byggðakjarnanna.
- Þetta er ekki ríkisstjórn fólksins í landinu, þetta er stjórn sérhagsmuna-aðila í landinu.
Tímamótasamningar við bændur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 17:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.