30.3.2016 | 10:09
Peninga- mennirnir segjast allir greiða skatta
- Það af peningum í mörgum milljónum talið sem þeir vita ekki einu sinni að þeir eigi.
* - Þeir geta allir eignast stóra hluti á Íslandi með því að smella fingrum. Án þess að hafa launatekjur og án þess að greiða skatta eins og venjulegt fólk.
*
- Sumt fólk lifir á loftinu einu saman og eignast miklar eignir. Þau fjögur ár sem ég bjó í Grindavík fékk ég alveg nýjan skilning á því hvernig hægt væri að lifa á loftinu einu saman.
* - Andrúmsloftið þar í bæ var iðulega verulega próteinmettað, Eitt sinn fyrr á árum fór ég til Vestmannaeyja. Þar var malað gull í tveim stórum verkssmiðjum.
* - Það margfalt meiri próteinmettun í andrúmsloftinu. Þetta var kallað eins og allir vita peningalykt af skattfrjálsum gróða á leið til útlanda.
* - Á báðum þessum stöðum áttu sumir afar stór hús með stórum tröppum og með tvö og þreföldum bílskúr á neðri hæðinni.
* - En á höfuðborgarsvæðinu gerist þetta allt lyktar-laust og með meiri hraða. En engu að síður er af þessu megn skítalykt.
* - Ég skil ekki hver munurinn er af skjólinu í Lxemborg eða á Seychelles-eyjum.
* - Gjörningur Bjarna er sá sami og markmiðið það sama á hvorum staðnum sem þessir aurar eru sem er að leyna þessu fyrir kjósendum öll þessi ár.
Afhverju eru skattaskjól slæm?
--- Þau byggjast á svindli. Þau taka arð sem verður til í einu landi og byggist á vinnuafli, velferðar- og menntakerfi og öðrum auðlindum þess lands og færa hann til annars (oftast lítilla eyja með nokkur þúsund íbúum) sem kom hvergi nærri því að skapa tekjurnar og á því enga kröfu á að skattleggja þær og gerir það líka ekki.
--- Notendur þeirra nýta frjálst flæði fjármagns, sem er í grunninn jákvætt skipulag, til að láta sem að eignarhaldsfélög í Lúxemburg, Tortóla og Panama séu að fjárfesta í okkar löndum. En í rauninni er þetta sumt okkar ríkasta fólk sem búið er að færa peninga sem urðu til hér og halda svo áfram að nota þá hér. Ekkert af þessum fyrirtækjum fjárfestir sínum peningum í verkefnum í Panama eða á Tortóla. Fólkið sem á þau vill búa hér, fjárfesta hér og njóta virðingar hér. Þau vilja bara ekki borga skatta hér - svona eins og við öll hin.
--- Þau eru mismunun á milli þeirra stóru og smáu í landinu. Þeir stóru hafa efni á lögfræðingum og endurskoðendum sem koma hagnaðinum undan en þeir litlu skila sköttunum sínum til samrekstrarins; í rekstur Landspítalans, skólakerfisins, vegagerð, fæðingarorlofsgreiðslur og fleira sem við teljum gott og erum stolt af. Sama efnahagslega starfsemin býr undir en eigendurnir búa í sitt hvorum veruleikanum. Sá litli býr á Íslandi. Sá stóri býr þar líka en hans fé ávaxtast margfalt hraðar og það er ekki af því að hann sé duglegri heldur af því að hann færði lögheimili peninganna sinna. Hann vill ekki viðurkenna að hann búi á sama heimili og þeir. Svona eins og sambýlisfólk sem skráir sig í sundur til að fá meiri bætur.
--- Hver eru áhrifin af tilvist skattaskjóla og hverjir eru að njóta þeirra? Það eru mjög fáir. Skattaskjól eru ein stærsta ástæða þess afhverju hinir ríku verða ríkari (í fyrra, árið 2015, áttu 65 ríkustu einstaklingarnir jafn mikið og helmingur jarðarbúa samanlagt. Árið 2010 þurfti 388 ríkustu í heimi til)
Taldi félagið skráð í Lúxemborg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 13:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.