31.3.2016 | 11:23
Þekkir greinilega sinn vitjunartíma
- Það er eðlilegt að hrósa Vilhjálmi fyrir snögg viðbrögð hans er hann sagði sig frá trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna.
* - Greinilegt er, að hann þekkir sinn vitjunartíma. Reyndar skil ég ekki erindi hans inn í verkalýðsflokk eins og Samfylkingin var stofnuð til að vera.
Engin veit um stöðu pírata varðandi skattaskjól. Líklegt er einmitt að það séu margir í þeirri stöðu þar á bæ. Einnig í flestum stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum.
Þá er rétt að benda á þá staðreynd, ef píratar komast í ríkisstjórn verða þeir auðvitað hluti af fjórflokknum alveg eins og vinstri flokkarnir eru sagðir vera það sem eru aðeins 16 ára.
Fólkið sem styður pírata á sér sömu rætur og fólkið sem stofnuðu núverandi vinstri flokka 1998. Sama fólkið.
Það er eðlilegt að það komi fram, að verkalýðurinn á Íslandi er ekki sökkvandi skip og ekki heldur stjórnmálaflokkar hennar og verkalýðssamtök. En það gengur oft á ýmsu og þannig hefur það verið allar götur frá 1906. Enda lýðræðisleg samtök frá 1938.
Hættir sem gjaldkeri Samfylkingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 11:47 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.