29.4.2016 | 14:57
Stjórnarflokkarnir eru áhugalausir um aflandsfélögin
- Umræða fer nú fram á Alþingi um tillögu VG á rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattaundanskotum.
Enginn ráðherra er í þingsal og aðeinn einn þingmaður stjórnarflokkanna á mælendaskrá.
Helmingaskiptaflokkarnir hafa greinilega engan áhuga á, að þessi mál verði rannsökuð.
Stigamennirnir auðvitað víðs fjarri
Þetta sagði ríkisskattstjóri 26. janúar:
,,Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri sagði í viðtali á Morgunvaktinni á Rás eitt í morgun að 80 milljarðar væru reiknuð stærð.
Þetta eru ekki 80 milljarðar sem hægt er að sækja. Það eru ýmis viðskipti sem eiga sér stað á grundvelli þess að þau séu dulin.
Ef það færi allt upp á yfirborðið þá er óvíst að af slíkum viðskiptum gæti orðið. Við höfum aukið í eftirlit á undanförnum árum og gerðum það núna síðast í lok síðasta árs og munum gera það meira.
Við erum að fara núna í nýja stefnumótunarvinnu þar sem verður mikil áhersla lögð á annars vegar þjónustu ríkisskattstjóra og hins vegar á eftirlitshlutverk.
Við höfum einnig verið í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins um þetta og nokkrar stofnanir eins og Vinnumálastofnun. Og með því að efla þetta allt er það trú okkar að það takist amk að halda þessu í skefjum, segir Skúli Eggert.
Bankaráðið bar ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 15:10 | Facebook
Athugasemdir
Er ekki nóg að vinstrihjörðin í stjórnarandstöðu heldur uppi áhuganum á aflandsfélögunum? Ég held það bara.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 29.4.2016 kl. 19:50
Það er til einföld lausn á málinu, sem er samþykkja það að þetta sé rannsakað og málið búið. Það getur ekki snert neina sem eru saklausir. En hreinsar andrúmsloftið. Það kemur auðvitað í ljós áður en langt er liðið hvernig þessi mál standa.
Vandinn er auðvitað sá, að það eru til leynistaðir sem íslenndingar ná ekki upplýsingum frá.
Kristbjörn Árnason, 29.4.2016 kl. 21:06
Heimurinn er stór og ef menn vilja fela peninga þá er það auðvelt.
En af hverju eru Íslendingar að fela peninga út um allar jarðir og vinna á svörtu, er það ekki stóra spurningin?
Það hlýtur að vera eitthvað, eða hvað? Og hvað er að? Ég hef mínar hugmyndir hvað er að, en það færi nú ekki vel í íslenskan almenning ef ég segði mína meiningu á því. Það eru nefnilega háværir þrýstihópar sem stund þöggunar aðferðir.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 29.4.2016 kl. 22:03
Það virðist sem margir stjórnmálamenn átti sig ekki á því að það eru breyttir tímar. Tími þöggunar og leyndar er liðinn og það væri best fyrir þá sem eru með einhvern skyrhræring í kringum sig verandi stjórnmálamaður að gera allt sem hægt til að láta sannleikann koma upp á yfirborðið.
Kristbjörn Árnason, 30.4.2016 kl. 00:03
Meðan Ísland er meðlimur að EES, þá er frjálst flæði fjármagns leifilegt og það er ekkert osiðferðilegt við það.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 5.5.2016 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.