1.9.2016 | 15:16
Ótrúlega lágir skattar þessa fyrirtækis.
- Ef 13,9 milljarðar eru hreinar tekjur þessa fyrirtækis má gera ráð fyrir að 20% tekjuskattur væri 2,9% milljarðar.
* - Hver eru síðan hin gjöldin?
Í ársreikningum kemur fram að Samherji greiði 4,3 milljarða vegna rekstrarins til opinberra aðila. Þá má áætla að 1,4 milljarðar fari í eftirfarandi gjöld .
- Fasteigna- og hafnargjöld, sem eru þjónustugjöld með miklum afslætti væntanlega sem eru greidd sveitarfélögum.
* - Tryggingagjöld sem eru greiðslur starfsmanna samkvæmt kjarasamningum og með baktryggingu í lögum. Fyrirtækin eða eigendur þeirra greiða ekki þessi gjöld. Hluti af launatengdum gjöldum
* - Iðgjöldin í lífeyrissjóðina eru hluti af umsömdum launum starfsmanna þ.a.l. ekki greiðslur fyrirtækisins. Hluti af launatendum gjöldum.
* - Sjúkra- og orlofsheimilasjóður starfsmanna, eru umsamin laun og því launatengd gjöld.
* - Fyrirtækið greiðir engin útsvör
* - Síðan er spurningin um veiðigjöldin sem fyrirtækið á að greiða fyrir fiskinn í sjónum.
* - Skattar starfsmanna eru heldur ekki greiðslur fyrirtækisins.
Hagnaður Samherja 13,9 milljarðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 15:19 | Facebook
Athugasemdir
Þetta eru ekki allt tekjur á Íslandi. Þýðir lítið að reyna að innheimta skatta á tekur úr öðrum heimshlutum.
Stefán Már (IP-tala skráð) 1.9.2016 kl. 15:30
Ef þeir greiða opinber gjöld í öðrum löndum kæmi það væntanlega fram í þessu ársreikningum. E.t.v. fer hluti af þessu til annarra landa ekki veit ég það. Eða að það reki fyrirtæki í öðrum löndum sem greiða opinber gjöld erlendis en byggjast á íslensku hráefni.
Hvað sem því líður, kemur ótrúlega lítið inn í íslenska samfélagið frá þessu fyrirtæki. Íslenska þjóðin fær lítið í sinn hlut þótt fyrirtækið gangi hér í auðlindina. Í raun er þetta bara hneyksli.
Kristbjörn Árnason, 1.9.2016 kl. 19:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.