10.1.2017 | 18:01
Stofnanaflokkurinn heldur völdum og fjölgar ráðherrum
- Brauðmola stjórnin
Nú sýnist mér ljóst, að Sjálfstæðisflokkurinn sé að fjölga ráðherrum upp í 11. Það gerir flokkurinn með þessari gamalkunnu aðferð sinni að halda leyndu fyrir þjóðinni áætlunum sínum fyrir fram svo koma málin bara í ljós.
Það var sérstakt verkefni einu vinstri ríkisstjórnar á Íslandi að fækka ráðherrum úr 12 í 8 ráðherra.
Eftir þær breytingar hafði hvor flokkur 4 ráðherra og ýmsir urðu sárir á eftir sem von var.
Nú er það ljóst að mínu mati að þessi flokkur hugsar meir um hagsmuni ýmissa ráðamanna í flokknum en um hagsmuni þjóðarinnar þegar kemur að sparnaði og ráðdeild.
Svona verður skipting ráðuneyta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 22:40 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.