Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Salek heldur ekki vatni- það er andvana fætt.

  • Það breytir engu hvort um er að ræða starfsfólk á almennum vinnumarkaði eða opinberir starfsmenn þetta ólýðræðislega ,,Salek" fyrirbæri heldur ekki vatni.

Á almennum vinnumarkaði þar sem markaðslaun eru viðvarandi hefur þetta fyrirbæri lítil áhrif.

Það er staðreynd að samtök atvinnurekenda hafa í gegnum tíðina hafa lagt áherslu á að halda niðri launatöxtum opinberra starfsmanna.

Þá hafa þessi samtök lagt áherslu á að hafa leiðbeinandi taxta fyrir hið opinbera í kjarasamningum sínum við ASÍ. Þeim tekst þetta yfirleitt þegar ASÍ leiðir samningsgerðirnar. 

En það stenst ekki að ríkisvaldið geti látið samtök atvinnurekenda ráða stefnu sinni í kjarasamningum. Stórir hópar sem starfa hjá ríki og hjá sveitarfélögum fá laun fyrir vinnu sína samkvæmt launatöxtum sem eru undir fátæktarmörkum.

  • Á þetta mun reyna á árinu. 

Ætla ekki heldur að starfa á Landspítalanum

Útskriftarnemar í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri lýsa fullum stuðningi við  útskriftarárganginn úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands í baráttunni um bætt launakjör.

landsspítalinnÞað er greinilegt, að ef Landspítalinn mun ekki hækka laun hjúkrunarfræðinga mun spítalinn hætta að fá sérfræðinga til starfa. 

Sama staðan er með kennara sem fást ekki lengur til starfa. Hvoru tveggja eru þetta mikil álagsstörf sem fólk bindur sig ekki við ef launakjörin lagast ekki.

Það er helst að þetta salek fyrirbæri bitni á ófaglærðu fólki sem starfar hjá hinu opinbera, t.d. í skólum. Það er fólkið sem starfar á launum sem eru undir fátæktarmörkum.

 


mbl.is Ríkið ekki upp fyrir Salek-línuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er framtaksvilji unga fólksins? ** Hvar er einstaklingsframtak þess?

  • Það hefur alltaf verið erfitt að komast yfir eigið húsnæði
    *
  • Það er vandséð að það sé eitthvað erfiðara nú en var fyrir 50 árum eða enn fyrr að komast yfir íbúð.

Á tímum þegar nánast engin húsnæðislán voru til staðar og enginn gat gert neitt nema að gefa sig á vald einhverjum ráðandi klíkuhópum stjórnmálaflokkanna. Þ.e.a.s. þeirra flokka sem fóru með valdið.

Á dögunum ók ég eftir Sæbrautinni sem áður hét Kleppsvegur. Þar standa íbúða blokkir í röðum er allar voru byggðar af byggingasamvinnufélögum launafólks. Öll voru þessi hús byggð af efnalitlu fólki sem enga sjóði áttu og voru með lág laun.

Prentarablokkin og BP blokkin eru auðvitað glæsilegt kennileiti um þessa tíma. Þessi hús eru auðvitað börn síns tíma og þættu heldur gamaldags á okkar tímum. En þetta eru ákveðin dæmi um góða samvinnu launafólks og það eru til fjölmörg slík dæmi um alla borg.

Enn í dag getur fólk stofnað byggingasamvinnufélög með búsetafélagasniði og þannig losnað við að ofurselja sig einhverjum byggingafyrirtækjum og stórum leigufélögum.

Fólk í slíkum félögum getur að miklu leiti ráðið byggingahraðanum. Þá geta félagar þeirra komið hlutunum þannig fyrir, að það sjálft geti unnið við sumar framkvæmdirnar við húsið.

Byggingasamvinnufélög þurfa ekki að ná yfir nema eitt fjöleigna hús eða kanski þrjár til fjórar íbúðir. Búseturéttaríbúðir eru að sínu leiti eignaríbúðir, hver fjölskylda borgar fyrir sinn búseturétt á móti húsnæðislánum.

Það getur selt hann og keypt stærri búseturétt allt eftir aðstæðum. Það þarf nánast enga yfirbyggingu yfir félag sem afmarkast við eitt fjölbýlishús. Bankar taka það að sér.

Mér er lífsins ómögulegt að skilja það, hvers vegna ungt fólk vel menntað skuli ekki bjarga sér sjálft í sínum húsnæðismálum í samstarfi með öðrum.

Til þess að félagslegar lausnir gangi upp verður einstaklingsframtakið að vera á fullu. Félagslegar lausnir eru nauðsynlegar meðal alls þess sem fólk stendur að í lífinu. Slíkum verkum þarf ekki sífellt að vísa til ríkis eða sveitarfélaga. Samtakamátturinn lyftir iðulega Grettistaki

Mynd frá Kristbjörn Árnason.
Mynd frá Kristbjörn Árnason.

mbl.is Dagur: Mér finnst þetta ódýrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki hægt fullyrða að þetta leiði til hækkunar þegar upp er staðið.

  • Rétt eins og ferðaþjónustu formaðurinn sagði, að þá eru engar líkur á því að ferðaþjónustan geti velt þessari skattahækkun út í verðlagið
    *
  • Ferðaþjónustan sjálf hefur verið að valsa með þessa peninga í stað þess að þeim sé skilað inn í samfélagið

Það yrði einfaldlega til þess að erlendu ferðafólki muni fækka eða myndi kaupa minna í íslenskum verslunum er aftur leiddi til lækkunar á vöruverði. Er vöruverð á Íslandi er með því hæsta sem gerist samkvæmt fréttum.

Síðan er auðvitað eðlilegt að ferðamenn sem til landsins koma greiði þann kostnað sem íslenska samfélagið verður fyrir vegna þeirra. A.m.k.er ekki eðlilegt að íslenskur almenningur beri þann kostnað.

Þessi skattahækkun hefur nánast engin áhrif á vísitölur í landinu og vexti.


mbl.is Verðlag mun taka kipp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til Glöggvunar,

  • Þessa dagana er mikið fjallað um ýmsa þræði sem liggja til fjarlagðra eyja.

Hér má sjá hvernig einka aðilar komist yfir sjóð Samvinnufélags sem með réttu átti að vera í eigu viðskiptavina félagsins.

Finnur Ingólfsson

Gift er fjárfestingafélag sem var stofnað árið 2007 og var upphaflega í eigu Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga.

Félagið er talið hafa fengið lán hjá Kaupþingi september 2008 sem var hugsað til þess eins að halda gengi Kaupþings uppi.

Árið 2011 gekk Gift í gegnum nauðasamninga hjá Arion banka og þá voru 57 milljarðar króna af skuldum Giftar afskrifaðir.

Forsaga Fjárfestingarfélagsins Giftar er að finna í Samvinnutryggingum sem voru stofnaðar árið 1946 með stofnfé úr SÍS.

Árið 1989 voru Samvinnutryggingar og Brunabótafélagið sameinuð og úr varð VÍS með um 50 þúsund félaga og rúmlega eitt þúsund fyrirtæki.

Árið 2003 tóku Samvinnutryggingar svo þátt í kaupum á Búnaðarbankanum sem síðar varð Kaupþing og hagnaðist félagið mjög á kaupunum.

Haustið 2007 voru Samvinnutryggingar lagðar niður en eignir og skuldir yfirfærðar í fjárfestingarfélagið Gift sem hélt áfram að fjárfesta á markaði með eignir Samvinnutrygginga en að mestu í fyrirtækjum sem tengdust stjórnendum Giftar.

Þar má nefna félög sem Finnur Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra, átti hlut í og félögum sem Þórólfur Gíslason, stjórnarformaður Giftar og kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagafjarðar átti í.

Þórólfur og Finnur urðu m.a. eigendur að Kaupþingi við einka-væðingu Búnaðarbankans.

(Wikipedia)


mbl.is Finnur: „Ég á ekki þetta félag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðaþjónustan vill eins og áður þiggja styrki af þjóðinni

  • Það er ekki hægt annað en að fagna því, að viðskiptamenn ferðaþjónustu-fyrirtækjanna skuli eiga að greiða sama virðisaukaskatt og íslendingar gera almennt
    *
  • Verði þannig látnir taka aukinn þátt í að greiða kostnað sem af veru þeirra hlýst í landinu.

Mikið hefur verið rætt um það á síðustu vikum að Ísland sé orðið eitt dýrasta ferðamannaland í heimi.

Engum dettur í hug, að á Íslandi er þjóð sem býr við þessa dýrtíð. Íslendingar eru löngu hættir að geta ferðast um sitt eigið land.

Ég hef enga trú á því að ferðaþjónustufyrirtækin geti hækkað verð sín þótt virðsaukaskatturinn verði aukinn.

Það er örugglega óeðlilega mikil álagning á þeirri þjónustu sem erlent ferðafólk kaupir á Íslandi. En ferðafólki má gjarnan fækka verulega.

Fjörutíu prósenta verðhækkun verður hjá sumum ferðaskrifstofa á ferðum innanlands næsta vetur.
 
Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu segir að styrking krónunar muni draga úr eftirspurn ferðamanna og fækka störfum í greininni. Hann furðar sig á að…
RUV.IS
 

mbl.is Taka skattahækkunum ekki þegjandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum skal trúa?

Steingrímur Ari Arason, sem sagði sig úr einkavæðinga-nefnd við einkavæðingu bankanna árið 2002, segir að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafi verið allsráðandi þegar ákveðið var hverjir fengu að kaupa hlut ríkisins í Landsbankanum og Búnaðarbankanum.

Steingrímur Ari

Steingrímur Ari sagði sig úr framkvæmdanefnd um einkavæðingu þegar ákveðið var að ganga til samninga við Samson um kaup á Landsbankanum, en hann taldi aðra tilboðsbjóðendur sniðgengna enda þótt þeir hefðu boðið betur en Samson.

„Ég hef setið í framkvæmdanefnd um einkavæðingu frá 1991 og hef aldrei kynnst öðrum eins vinnubrögðum,“ sagði Steingrímur Ari í frægu afsagnarbréfi sínu.

Hann hefur ekkert tjáð sig um afsögn sína þar til hann gerði það fyrir rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið.  Hann var svo í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.

Í viðtalinu sagði Steingrímur Ari að nefndin hefði viljað vinna eftir ákveðnum reglum, en þær verið sniðgengnar.

“ Við vildum vinna eftir reglum, þannig að það yrði hafið yfir vafa hvað við værum að gera. Smám saman voru reglurnar svo settar til hliðar,“ sagði Steingrímur Ari.

Hann gerði athugasemdir við að Samson hafi fengið að setja fyrirvara um að fá vitneskju um hve há fjárhæð væri í afskriftarsjóði Landsbankans.

Aðrir hafi ekki fengið þessar upplýsingar, en ef þeir fengju þennan afslátt yrði þeirra verðtilboð lægra en keppinautanna. Hann bendir á að ríkið var þegar orðið minnihlutaeigandi á þessum tíma, Landsbankinn orðið almenningshlutafélag og það stæðist ekki reglur að gefa þessar upplýsingar.

„Svona eftir þá, þá hugsar maður að þarna fær væntanlegur eigandi að fara inn í bankann með óeðlilegum hætti, að mínu mati,“ sagði Steingrímur Ari í viðtalinu og rifjar upp að hafa mótmælt þessu innan nefndarinar.

„Því var bara hafnað. Skilaboðin sem ég fékk voru að það væri bara búið að taka ákvörðun að semja við Samson. Ég fékk enga skýringu á því, nema mönnum bara lá á,“ segir hann.

Aðspurður sagðist Steingrímur hafa tilkynnt Geir H. Haarde, þáverandi fjármálaráðherra, frá þessari ákvörðun sinni.

Viðbrögð hans voru, einsog fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, að hann vísaði málinu alfarið á Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra. Hann ræddi þó afsögn sína ekki við Davíð Oddsson.

„Ég fékk það mjög sterklega á tilfinninguna – og það gerði Valgerður líka – að það væru í raun Davíð og Halldór sem réðu ferðinni, þarna sem áður í mörgum málum,“ sagði Steingrímur Ari.

Á þessum tíma var starfandi ráðherranefnd um einkavæðingu bankanna, en í henni sátu Davíð Oddson, Halldór Ásgrímsson, Geir H. Haarde og Valgerður Sverrisdóttir. Steingrímur Ari segir að Davíð og Halldór hafi einir ráðið ferðinni.

„Ég tel 99,9% líkur á því að þeir hafi verið búnir að ákveða að selja þessum tveimur aðilum bankana,“ sagði Steingrímur Ari.  „Það fór ekkert á milli mála að þeir höfðu ákveðnar skoðanir á þessum aðilum. Þetta var pólitísk ákvörðun hverjir fengu bankana.“


mbl.is Gátu ekki varist blekkingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn skal láta launafólk borga!

  • Ótrúleg samþykkt hjá bæjarstjórn Akranesbæjar. Ákveðið hefur verið að bæjarsjóður leggi í framkvæmdir við höfnina á kostnað launafólks á Akranesi
    *
  • Þeir ætlast einnig til þess að launafólk í öðrum byggðum við flóann sem eiga aðild að ,,Faxaflóahöfnum" geri það einnig.

Menn skyldu átta sig á þeirri staðreynd, að það er eingöngu launafólk sem sem kostar bæjarsjóðinn og greiðir til hans fé með útsvarsgreiðslum sínum.

Þessar greiðslur launafólks standa t.d. undir þeim kostnaði sem byggðarlagið verður fyrir vegna hafnarframkvæmda.

Fasteignagjöld og hafnargjöld eru þjónustugjöld sem eiga að standa undir kostnaði bæjarsjóðs við þjónustu við bæjarbúa og fyrirtæki á Akranesi.

Líklegt má teljast að útgerðarfyrirtæki eins og Grandi fái þegar verulegan afslátt á hafnargjöldum og einnig á fasteignargjöldum.

Því eru allar líkur á að þjónustugjöld þessa fyrirtækis standi alls ekki undir þeim kostnaði sem verður til vegna þeirrar þjónustu sem það fær af hendi bæjarins.

Þá hefur bæjarstjórnin staðið sig afar illa mengunarkröfum sínum gagnvart Granda.

Akranesbær fær enga bitastæða tryggingu fyrir því að Grandi muni vera með stórkostlega starfsemi á Skaganum til framtíðar þótt hossað verði undir fyrirtækinu og allt látið eftir því.

Já, það var mikill missir af því þegar dalamaðurinn lét fyrirtækið sameinast fyrirtækjum hrægammana fyrir sunnan. Þar voru svikin við íbúana framkvæmd. Það sem síðan hefur gerst var bara eitthvað sem reikna mátti með, svona eins og í Sandgerði.

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir að þrjá þurfi til að geta samið við HB Granda um uppbyggingu á Akranesi; bæjarstjórn Akraness, HB Granda og Faxaflóahafnir.
RUV.IS
 

mbl.is Farið yfir málin á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlend þekking bankanum mikilvæg

  • Nú sem áður nálgast Katrín Jakopsdóttir þetta bankamál af varfærni eins og öll fyrri mál sem hún tjáir sig um
    *
  • En segir kaup fyrrum kröfuhafa Kaupþings á stórum hlut í Arion banka vekja ýmsar spurningar.

arion 1

„Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, bendir á að hlutur tveggja fjárfesta sé rétt undir 10% viðmiðunar mörkum Fjármálaeftirlitsins fyrir virkan eignarhlut. 

Slík kaup, ef þau væru yfir 10%, myndu kalla á sérstakt mat á hæfi eigenda, en þessir hlutir miðast að minnsta kosti tveir þeirra við 9,99%. Þannig að það virðist vera að það sé stefnt að því að þetta mat þurfi ekki að fara fram hjá Fjármálaeftirlitinu.“

Katrín segir endanlegt eignarhald á sjóðunum líka vekja spurningar, því það liggi ekki fyrir með skýrum hætti.

Forsætisráðherrann segir þessi kaup sýna styrkleika íslenska fjármálakerfisins.

En auðvitað sýnir það líka um leið veikleika þess. Þ.e.a.s. að fjárfestar þessir sjái að þeir geti tekið fljóttekinn gróða. Eitt er alveg víst, að þessir aðilar munu ekki hafa frumkvæði að vaxtalækkunum.

Sigmundur Davíð bullar um málið á bloggsíðu, en Benedikt Jóhannesson bendir á að þessi gjörningur sé alveg samkvæmt samningum sem Sigmundur Davíð gerði við þessa kröfuhafa og nú fjárfesta þegar hann sjálfur var forsætisráðherra.

Þessir aðilar hafa allan tíman haft hönd á þessum eignarhlut sem viðurkenndir kröfuhafar en verið fastir með þessa aura hér.

Bankastjórinn segir gott að fá þessa erlendu aðila sem hluthafa í bankastjóranum, þeir komi m.a. með víðtæka þekkingu inn í bankann. En einn aðilinn er nýlega dæmdur fyrir stórfelld mútumál í þriðja heiminum.

  • Það er ekki ónýtt fyrir bankann að fá slíka þekkingu að utan inn í hið gjörspillta mútu-samfélag sem Ísland hefur lengi verið.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, segir kaup fyrrum kröfuhafa Kaupþings á stórum hlut í Arion banka vekja ýmsar spurningar.
RUV.IS
 

mbl.is Veðja nú með Íslandi en ekki á móti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérkennileg umræða-- alltaf sami vællinn

  • Nú segir að um fimmtán hundruð afbókanir hafa borist norsku ferðaheildsölufyrirtæki vegna fyrirhugaðra ferða til Íslands í sumar
    *
  • Framkvæmdastjórinn segir afbókanirnar hrúgast inn sem aldrei fyrr, fyrst og síðast vegna styrkingar krónunnar
    *
  • Fullkomlega eðlilegt

Þetta getur ekki komið neinum íslendingi á óvart sem búa hér innanlands við hin íslensku verð á öllum hlutum, að útlendingum bregði við þegar þeir sjá verðin á öllu hér í landi.

Sérstaklega þegar miðað er við gæðin í þessari ferðaþjónustu sem eru iðurlega fyrir neðan allar hellur. Sérstaklega þegar náttúru fyrirbrigði eru skoðuð í landinu.

Undanfarnar vikur og daga hafa verið fluttar af því fréttir að fataverslanir eru komnar í mikinn vanda. Þessar búðir eru hættar að geta selt íslendingum föt, vegna okurs.

Íslendingar kaupa fatnað á útsölum eða bara erlendis þar sem hann kostar ekki nema þriðjung af því verði sem hann kostar á Íslandi. Jafnvel sömu vörurnar.

  • Almennt séð ríkir á Íslandi yfirgengileg dýrtíð og fjölmiðlar taka ekkert eftir því. En það er staðan í flestum gerðum verslana hér.

Þrátt fyrir að ríkisvaldið hafi verið að lækka skatta hjá þessum fyrirtækjum er hafa í raun ekki skilað slíkum lækkunum til heimamanna. Jafnvel bensínverð er tvöfalt dýrara á Íslandi enn í mörgum Evrópulöndum.

  • Þetta hefur ekkert með styrkingu krónunnar að gera. Heldur er íslensk verslun afburða léleg atvinnugrein, hefur alltaf verið og hefur aldrei þurft að standast alvöru samkeppni. Ferðaþjónustan virðist ekkert betri.

Ferðaþjónustufyrirtækin eru heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þar er okrað. Öll gisting á á verði sem fer með himinskautum.

Það er óhjákvæmilegt að fyrirtæki í þessari atvinnugrein verða að lækka verðin verulega eða að hætta starfsemi ella. Mörg eiga þessi fyrirtæki ekki rétt á sér og hafa verið staðin af því að fara illa með starfsfólk. Slík fyrirtæki lifa aldrei lengi.

Þessi fyrirtæki geta heldur ekki haldið áfram að velta ýmiskonar kostnaði og óþægindum yfir á íslenskan almenning.

  • En þessi grein hangir daglega í pilsfaldinum á ríkisvaldinu.
Um fimmtán hundruð afbókanir hafa borist norsku ferðaheildsölufyrirtæki vegna fyrirhugaðra ferða til Íslands í sumar. Framkvæmdastjórinn segir afbókanirnar hrúgast inn sem aldrei fyrr, fyrst og síðast vegna styrkingar krónunnar.
RUV.IS
 

mbl.is Hefur ekki áhyggjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öll erum við ábyrg

  • Öll erum við aðilar að Sýrlandsstríðinuherþyrla 1
    *
  • Íslendingar sem aðilar að Nató eru gerendur
  • Bæði stóru herveldin eru gerendur í fremstu röð ásamt ESB
  • Öll araparíkin eru meira og minna aðilar að þessari styrjöld.

mbl.is Þau vilja bara deyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband