Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
9.9.2015 | 17:50
Fingraförin leyna sér ekki
- Þetta eru auðvitað gömlu miðstýringar
vinnubrögðin sem hafa einkennt störf þessara flokka frá öndverðu.
Ekki á að treysta fólkinu sjálfu í landinu. Það var einmitt sama miðstýringar áráttan sem eyðilagði gamla verkamannabústaðakerfið sem var mjög gott en þurfti uppfærslu við.
En vandinn við það að fólkinu sé treyst, dregur úr valdi þessara flokka sem hafa ætíð nærst á slíkri miðstýringu og neyðir fólk til að krjúpa við fótstall þessara flokka.
Mætti maður biðja um eitthvað annað sem væri í takt við árið 2015.
- Væntanlega fá hagsmuna aðilar atvinnulífinu aðgang að þessu stjórnkerfi eins og byggingariðnaðurinn og sveitafélögin en neytendur engan.
* - Greinilega á að leggja niður stofnun sem hefur sinnt svona verkefnum í áratugi til að skapa atvinnu í kaupfélags kjördæminu. Hér er spilling á ferð strax í upphafi.
* - En þessir flokkar tveir hafa oft áður krukkað sameiginlega í húsnæðikerfið og alltaf séð um að þeirra menn sitji við kjötkatlana. Afleiðingar hafa oftast verið skelfilegar.
* - Það má ekki gleymast hvernig þessir flokkar misnotuðu Íbúðalánasjóð eins og stofnunin hét þá í þágu stóriðjunnar.

![]() |
Búið að tryggja fjármagn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2015 | 11:59
Flóttafólk
- ,,Og svo sem þér viljið, að aðrir menn gjöri við yður, svo skuluð þér og þeim gjöra".
* - ,,Og þótt þér elskið þá, sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það".
Þessar tilvitnanir eru eða eiga að vera grunnstefið í kristninni. Sem betur fer kviknar á þessum tilfinninga ríku stefjum iðulega hjá fólki er eitthvað bjátar á.
Jafnvel þeir sem telja sig vera heiðingja hér á vesturlöndum hafa iðulega tileinkað sér þetta sem kjörorð í lífinu einnig.
Því jaðrar umfjöllun Fréttablaðsins í gær um hugsanlega kostnað sem því fylgir fyrir íslendinga að taka á móti flóttamönnum frá fjarlægum löndum við siðleysi.
Síðan tekur RÚV undir með þessum úrtölu-aðilum. Alveg án þess að leggja nokkurn dóm á efni fréttarinnar og eða hvað Fréttablaðið er í raun að segja
Rétt eins og í umfjöllun Morgunblaðsins á dögunum og teiknimyndin sem birtist á leiðarasíðunni. Er rifjar auðvitað upp fyrir manni hverskonar flokkur Sjálfstæðisflokkurinn er í raun og veru.
Það er staðreynd sem vert er að hafa í huga, að Ísland hefur allar götur frá 1956 aðeins tekið á móti 549 flóttamönnum sem eru skammarlega fáir flóttamenn og eru þá ungverjarnir taldir með.
Almennt verður að segjast eins og er, að flóttamenn sem hingað hafa komið hafa almennt reynst duglegir og dyggir þjóðfélagsþegnar á Íslandi.
Það er ljóst, að samkvæmt fyrri reynslu af flóttafólki verður það flóttafólk sem kemur til landsins núna búið að greiða þennan kostnað á innan við tíu árum. Með framlagi sínu til þjóðarframleiðslunnar og með skattagreiðslum.
Það væri skynsamlegt að skoða frekar kostnað þjóðarinnar sem hefur skapast vegna fólks sem hefur flúið Ísland. Líklegt er að allt að 10 þúsund manns hafi farið og yfirleitt vel menntað fólk hvert á sínu sviði.
Fólk sem íslensk þjóð hefur átt erfitt með að missa af. En kostnaður þjóðarinnar vegna þessa fólks vegna félagslegrar þjónustu, vegna heilbrigðisþjónustu og menntunar er miklu meiri vegna þessa fólks.
Þetta fólk ætlar sér ekki að greiða kostnaðinn til baka til þjóðarinnar, það er farið og það á besta aldri. Það vill hugsanlega koma í ellinni til að láta sjá fyrir sér.
![]() |
Nálgast íbúafjölda Frakklands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2015 | 09:51
Ríka fólkið
- Ríka fólkinu í fjölmörgum ríkjum eins og í Bandaríkjunum er meira umhugað um hvali en börn.
Þá eru það stóru olíufyrirtækin sem vilja ráða yfir olíunni sem auðvelt er að ausa upp á þurru landi eyðurmerkurinnar.
Faresearnir í Bandaríkjunum er hættulegt fólk sem hefur mjög sterk pólitísk áhrif og mjög mikla peninga.
Ekki dettur þessari ríku þjóð sem er reyndar þegar grannt er skoðað stórskuldug svo hættulegt sem það er, að gera sitt til að rækta upp eyðurmerkurnar.
Mannkynið býr við nægilega þekkingu sem gerir það gerlegt og gæti hjálpað til við að bæta andrúms-loftið á jörðinni
Það sama má segja um pólitísk áhrif gyðinga í þessu ríki sem er skelfileg er tryggir eilíf yfirráð morðingja í Palestínu sem drepur og hrekur burt eigendur landsins.

![]() |
Komin heim í líkkistu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2015 | 14:15
Kostulegar skipulagshugmyndir
Að ætla sér að setja niður skóla Hjallastefnunnar sem er ætlaður leikskólabörnum og grunnskólabörnum inn í mitt íbúðarhverfi er algjörlega fráleitt.
Þetta er ekki venjulegur hverfisskóli heldur skóli sem fer sínar eigin leiðir og hefur sína eigin skólastefnu.
Foreldrar sem kjósa að setja börn sín í þennan skóla af einhverjum málefnanlegum ástæðum. Þ.e.a.s. vegna stefnu skólans m.a.Búa víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Þetta þýðir að börnin koma allsstaðar að, frá öllu höfuðborgarsvæðinu. Flest yngri börnin njóta aksturs hjá foreldrum sínum, en líklega geta flestir eldri nemendur nýtt sér sameiginlegt samgöngukerfi á stór Reykjavíkursvæðinu.
Því er æskilegt að þessi skóli verði sem næst helstu samgöngumiðstöð höfuðborgarsvæðisins. Slík staðsetning myndi þá vera í sátt við allann almenning. Það er mikilvægt
![]() |
Mótmæla áformum um nýjan skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2015 | 23:45
Danir hafa lengi verið snjallir sölumenn
- Því finnst mér finnst þetta vera frekar ótrúleg frásögn hjá formanni neytendasamtakanna.
Vegna þess að danir eru almennt miklu snjallari kaupmenn en að þeir fari að selja sínar vörur á afslætti.
Hið trúanlega hefði verið að danska síldin sem væri seld hér á verulega hærri í verði, en það væri setið um hverja krukku af íslendingum vegna þess hversu eftirsótt danska síldin er.
- Ég get nefnt dæmi um snilld dana í svipuðu máli.
En Danir kaupa tóbak frá bandaríkjunum og hafa gert áratugum saman. Þeir flytja það með skipum til Danmerkur og framleiða úr því smávindla sem eru merktir sem danskir í nafni vindlanna.
Síðan eru þeir fluttir til Bandaríkjanna aftur og seldir þar á verði sem er helmingi hærra en sambærilegir amerískir vindlar.
Allir eru ánægðir með þessa vindla einkum bandaríkjamenn og íslendingar einnig sem kaupa þessu vindla á háu verði.

25.8.2015 | 12:47
Aldrei þessu vant er ég dalamanninum sammála.
- Það er auðvitað stóra vandamálið á Íslandi, að þjóðin skuli ekki getað tekist á við verðbólguna.
Verðtryggingin sem á að vera lausnin en er það ekki því hún er löngu orðin hin stóra meinsemd samfara frjálsum okur vöxtum bankanna sem koma til viðbótar við verðtrygginguna + allskonar kostnaður.
Þ.e.a.s. að það er nákvæmlega engin samkeppni milli bankanna. Auk þess öll efnahagsstjórn er afar áhrifalítil vegna greiðsludreifingarinnar.
Ég dreg alvarlega í efa að þótt til landsins komi útibú frá erlendum banka að það muni lækka t.d. útlánsvexti og bjóða betri ávöxtun á sparifé.
En þjóð sem ekki þolir að verðtrygging sé á öllum fjármála sviðum samfélagsins getur ekki tekið upp Evru.
Það kemur alltaf betur og betur í ljós, að þeir sem hafa sterkustu samningsstöðuna á hverjum tíma nýtur góðs á því misrétti sem nú þrífst í landinu.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri sem var hinn helsti baráttumaður fyrir því að verðtryggingin var tekin upp, sagði að útlán með verðtryggingu þyrfti ekki að bera nema 1 1,5% vexti að hámarki. Í lokin hafði hann hækkað þetta hámark í 2% sem algjört hámark.
![]() |
Vandinn er verðtryggingin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.8.2015 | 09:05
Háþróaðar regnhlífa umferðarreglur
- Það ringdi hressilega í gær í miðborginni og ljóst er að veðurguðunum hefur þótt nauðsynlegt að skola fólkið svolítið sem gekk með miklum gleðibrag um strætin.
Þetta þýddi fyrir okkur að við fórum miklu fyrr heim en við höfðum hugsað okkur þegar lagt var í hann. Miklu minna bar á útlendingum í mannhafinu en verið hefur í sumar.
Niður eftir öllum Laugavegi beljaði stórfljót sem flaut yfir alla strigaskó og ljóst var að fólk var vott á fótum. En allir voru eitt brosandi land og staðráðnir í því að hafa gaman af deginum.
Nú bar svo við að gríðarlegur fjöldi regnhlífa af öllum gerðum liðaðist áfram um göturnar á mínum bernskuslóðum.
Oftast þegar regnhlífar fara á loft í slíku margmenni eru þær að rekast á hvor aðra. En tilitssemin í gær var slík að ekkert varð um árekstra á milli regnhlífanna.
Þá var kattarbúðin opin og þar var fullt út úr dyrum þar sem fólk var að keppast við að kaupa sér hlífðarklæði vegna rigningarinnar. Sjá mátti hundruð fjölskyldna í bleikum regngöllum með hettu á sjötta tímanum.
![]() |
Flugeldarnir dönsuðu um himininn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2015 | 21:01
Þetta er auðvitað, ekkifrétt
- Því það er ljóst að Guðmundur var fyrir löngu búinn að missa áhugan á þessu forystuhlutverki sínu í þessum félagsskap.
* - Allt malt var uppurið ef það hefur einhverntíma verið fyrir hendi. Það vantaði raunar alltaf eldmóðinn í kallinn. En sjálfsagt góður drengur, en það dugir bara ekki til að halda lífi í stjórnmálaflokki
Þannig að þessi ákvörðun er í sjálfu sér rökrétt og drengileg . Væntanlega er eftir í þessum flokki fólk sem hefur áhuga á að drífa flokkinn áfram. Fram steig stúlka sem hafði þann dug í sér að segja sannleikann.
Því er það rétt mat hjá hugsanlegum eftirmanni að við núverandi aðstæður verður að fara fram raunveruleg kosning milli manna svo hugsanlegt verði að áhugasamasti og hæfasti aðilinn verði valinn.
Einfaldlega vegna þess að slík innri barátta hefur aldrei farið fram, það eru mestar líkur á því að sigurvegari í slíkri keppni hafi dug í sér til að afla þessum flokki fylgi. Þeir sem ekki nenna að berjast eru ekki líklegir til að hafa áhuga á að berjast fyrir þennan flokk.
Björt Framtíð sem flokkur er hreinræktaður miðjuflokkur sem á ekkert skylt við hægri arm gamla Alþýðuflokksins. Sá hluti flokksins var vinstri sinnaður.
Alþýðuflokkurinn átti alla tíð mjög sterkar rætur í ASÍ og átti enn á meðan flokkurinn var við lýði, rétt eins og Alþýðubandalagið. Núverandi vinstri flokkar hafa engin formleg tengsl við verkalýðshreyfinguna. Í þeim flokkum starfa ekki verkalýðsmálaráð.
Það er helst að Björt Framtíð líkist Framsóknarflokknum, þ.e.a.s. vinstri hlið hans. En það er eins hann og með nýju flokkanna til vinstri, að BF hefur engin tengsl við ákveðin hagsmunaöfl eins og Framsóknarflokkur hefur enn við bændasamtökin og tengsl við það sem eftir stendur af samvinnuhreyfigunni.
Þetta er í raun megin munurinn á nýju stjórnmálaflokkunum sem hafa engin tengsl við hagsmunaöfl í samfélaginu.
Á meðan gömlu valdaflokkarnir hafa mjög sterk tengsl við öflugustu hagsmunasamtök þjóðarinnar, einkum Sjálfstæðisflokkurinn. Sem eru samtök atvinnurekenda í landinu.
ASÍ og samtök opinberra starfsmanna hafa verið að veikjast mjög síðustu rúmlega 20 árin vegna þess að skorið hefur verið á öll formleg flokkspólitísk tengsl hreyfingarinnar við vinstri flokka landsins.
Allir þessir aðilar sitja sárir eftir og almenningur gerir samt sem áður kröfur til þess að allir þessir aðilar standi undir nafni. Kröfur sem þessir aðilar geta ekki staðið undir eins sundraðir og þeir eru.
Í þessu tómarúmi hafa verið að myndast stjórnmálaflokkar eða hópar sem hafa enga grundvallarstefnu en fljóta áfram rétt eins og rótlaust þang.
.
![]() |
Hættir sem formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2015 | 17:36
Katrín varpaði fram spurningu til umræðu og nefndi leiguþak
- Það er ansi merkilegt að fylgjast með viðbrögðum ýmissa hægri manna og þeirra sem tengjast fjármálakerfinu.
Áratugum saman hefur mönnum samt þótt eðlilegt, að þak sé sett á greiðslubirði á húsnæðislánum fólks sem hlýtur eðlilega hafa svipuð áhrif á fjármálamarkaðinn.
Þá hefur fjárfestum og eignamönnum þótt eðlilegt að húsaleigutekjur séu flokkaðar sem fjármagnstekjur og að þær séu skattlagðar sem slíkar.
- Einnig að það sé farið eins með rekstur á á leiguhúsnæði eins og um framleiðslufyrirtæki sé að ræða.
* - Að skattur sé aðeins greiddur af nettótekjum en ekki af brúttótekjum eins og launafólk gerir.
Þá er ekki heldur greitt útsvar til sveitarfélaganna af slíkum leigutekjum. En sveitarfélögin hafa mikinn kostnað vegna slíkrar starfsemi Aðeins eru greidd fasteignagjöld sem eru í raun þjónustugjöld.
Í stað þess að ræða þessi mál með lausnir að markmiði fara menn í varnir fyrir þá sem hagnast af því ástandi sem nú er ríkjandi.
- Ég geri ráð fyrir að Katrín Jakopssdóttir setji þessa hugmynd eða spurningu á flot til umræðu. Bæði til að vekja ítrekað athygli á skelfilegu ástandi í húsnæðismálum fólks á öllum aldri og einnig til að benda á, að finna verður lausnir.
Fólk sem býr í skuldlitlum og eða skuldlausum íbúðum sem keyptar hafa verið fyrir 30 árum ca. Naut niðurgreiddra vaxtakjara þegar það keypti sínar íbúðir og þeir sem keyptu 15 árum fyrr óverðtryggðra lána í bullandi verðbólgu.
Fólkið t.d. í eldri einbýlishúsahverfum Mosfellsbæjar greiddu helmingi lægri vexti en fólk sem keypti félagslega íbúðir nokkrum árum síðar. Auk þess sem fjölskyldur gátu dregið vaxtagreiðsur vegna húsnæðislána frá tekjuskattinum (króna á móti krónu) sem það annars átti að greiða. Svona fyrirgreiðsla kostaði peninga.
Við fyrstu sýn, væru hugmyndir Karínar Jakopsdóttur margfalt ódýrari fyrir samfélagið en stuðningur við íbúðakaupendur kostaði áður fyrr.
En auðvitað kosta allar svona hugmyndir peninga, því tæplega gefa húseigendur eftir tekjumöguleika sem hafa af eignum sínum bótalaust. Einna nærtakst virðist vera að skoða vextina sem hvíla á eignunum.
Húseigandinn er reyndar að greiða lágmarksskatta af þessum tekjum sínum eða fjármagnstekjuskatt.
En til að hugsa í lausnum, þá dettur mér í hug að húseigendum sé boðið upp á að gera samning um að íbúð á hans vegum væri félagsleg íbúð í ákveðin árafjölda, t.d. 5 ár og samkvæmt ákveðnum reglum um ástand íbúðar og leiguverð . Enda væri íbúðin þá í útleigu að lágmarki í 5 ár fyrir sömu fjölskyldu nema eitthvað kæmi upp á.
Einnig gæti sveitarfélagið þar sem íbúðin er veitt einhvern afslátt af fasteignagjöldum. Í því sambandi verður að benda á, að íbúðareigandi greiðir ekki útsvar af leigutekjum, enda fjármagnstekjur.
Það yrði þá hlutverk þeirrar nefndar í sveitarfélögunum er annast húsnæðismál að annast milligöngu um þessi leigukjör á hverjum stað og leigumálin færi á milli nefndarinnar og húseigandans.
Hér er ekki fjallað um málið í smáatriðum heldur aðeins velt upp hugmynd að tímabundinni lausn , til umræðu.
Þetta hugflæði Katrínar hefur ekki verið rætt innan VG svo ég viti. Þar er fólk auðvitað einnig með hugan fast við ríkjandi fyrirkomulag í húsnæðismálum.
Þar þarf einnig sem og annarstaðar að skapa lausnamiðaða umræðu um húsnæðismál og eignahugtakið í nýju ljósi. Ekki gengur að láta banka- og fjármálaaðila ráða ferðinni enn einu sinni.

![]() |
Leiguþak er ekki lausnin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.8.2015 | 15:34
Það er ekki að sjá, að afnám vörugjalda hafi lækkað verð á sjónvörpum
- Eða ætla kaupmenn að halda því fram, að það hafi verið enn meira okur á þessum tækjum en nú er.
* - Gríðarlegur munur á verði á sjónvörpum á Íslandi og í Danmörku.
- *
- Danmörk er ekki þekkt fyrir lágt verð á heimilistækjum
Í þessum gögnum kemur fram ótrúlegur verðmunur á samkonar tækjum milli Íslands og Danmerkur.
Í minum huga er svona verðmunur á miklu fleiri tegundum af rafmagnsvörum heldur en bara á sjónvörpum.
Framkemur einnig, að lagðir eru lægri gjöld á þessar vörur hér en í Danmörku. Flutningskostnaður skýrir ekki þennan verðmun. Þetta eftir að vörugjöld voru aflögð af þessum vörum..
Hægt er að skoða skrá yfir verðin í samanburði við smskonar tæki í Danmörku. Það er aðeins ein tegund af sjónvörpum sem hægt er að fá lægra verði á Íslandi af 59 tegundum

Neytendasamtökin hafa jafnframt skoðað upplýsingar á síðu dönsku neytendasamtakanna og borið saman við verð í Danmörku á 59 mismunandi sjónvarpstækjum. Þó nokkuð er um að verslanir hér á landi séu með s
![]() |
Hafa skilað styrkingu að fullu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)