Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Greinilega ekki bara einhverjar stelpur

  • Þær ásökuðu eru bara strax komnar með lögmann í málið. 

Það kostar almennt séð ekki neina smáaura. Það má vel vera að þessi Stella hafi misskilið það hvers vegna þessar eyjapæjur réðust á hana.

Það sem hlýtur að standa upp úr í þessu máli er, að enginn á að hafa leyfi til að ráðast á annann.

Það eru ekki mörg ár síðan að stúlku ofan af Akranesi var misþyrmt í miðborg Reykjavíkur. Hún hefur aldrei borið þess bætur.

Slagsmál og ofbeldi er pottþéttur fylgifiskur fjölda ölvunar. Þessi skemmtun í eyjum er fyrir löngu orðin alræmd drykkjuhátíð.

Þarna hefur áfengi verið til sölu og er það rækilega auglýst.


mbl.is Viðbrögðin minna á Lúkasarmálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er sem í eigin heimi

  • Það er full ástæða til þess að óska Pírötum til hamingju árangur sinn í skoðanakönnunum. Þetta er út af fyrir sig góður árangur.
    *
  • En sem betur fer er þetta bara árangur úr skoðanakönnunum.

Það er einnig eftirtektarvert hvernig forystumenn Pírata taka þessum flottu niðurstöðum úr könnunum í þessa fjóra mánuði.

En þeir hafa ítrekað bent á þá staðreynd, að þessi útkoma sé vegna þess að fólk vantreysti stjórnmálaflokkum sem hafa komið að því, að axla ábyrgð á því að vera fyrirliðar um stjórn landsins.

  • Það má vel vera rétt hjá Birgittu er hún segir, að fólkið sé að kalla eftir að það verði grundvalllarbreytingar á löskuðu kerfi.
    *
  • Hér væri frændhygli, spilling og óskilvirkni við lýði og engu skipti hver væri við völd á meðan að þessir þættir væru innbyggðir í kerfið.
    *
  • Það þyrfti að breyta þeim kerfum sem eiga að þjóna almenningi en virðast ekki vera að gera það.

Þetta er auðvitað mjög mikil einföldun hjá Birgittu og hún veit vel að Pírítar geta ekki breytt þessari stöðu, nema með öðrum og að sett yrði lög um að koma í veg fyrir svona sterk áhrif hagsmunahópa, t.d. í atvinnulífinu á íslandi.

Það er rétt að þau áhrif eru allt of mikil eins og sjá mátti þegar vinstri stjórnin starfaði. 

Þá var það sannarlega staðreynd, að Sjálfstæðisflokkurinn í samstarfi með samtökum atvinnurekenda var miklu sterkara vald á flestum sviðum en ríkisstjórnin sjálf.

Einkum á fyrri hluta kjörtímabilsins þegar þessum aðilum tókst að virkja nær meirihluta ASÍ með sér í hernaði gegn vinstri stjórninni.

En núverandi vinstri flokkar eru og voru ekki ataðir í spillingu og frændhygli vegna þess einfaldlega, að þeir eru nýir flokkar og hafa sáralíti tengsl inn í hagsmunasamtök eins verkalýðshreyfinguna. Þeir eru ekki hagsmunagæsluflokkar.

Höfðu heldur ekki komið að ríkisstjórnum á Íslandi, nema Samfylking í aukahlutverki í nokkra mánuði. Almenningur hunsaði forystu ASÍ eftir hrunið og kenndi því einnig um hörmungarnar.

Í raun hefur almenningur látið ritstjóra Morgunblaðsins teyma sig á asnaeyrunum, það er einmitt hann sem hamraði á þeim áróðri að „fjórflokkarnir“ bæru sameiginlega ábyrgð á því ástandi sem var og er í samfélaginu.

Þessi áróður gagnaðist Sjálfstæðisflokknum mjög vel, en gömlu vinstri flokkarnir voru ekki til lengur og höfðu sameinast öðrum stjórnmálaöflum. M.ö.o. Það er enginn fjórflokkur í landinu. Gömlu vinstri flokkarnir voru lagðir niður fyrir 15 árum.

Það má í raun segja, að sá hópur sem stendur á bak við Pírata sé kominn úr sama jarðvegi og nýju vinstri flokkarnir og vinstri armur Framsóknar. Það sama má segja um „Bjarta framtíð“

Það er ljóst, að Píratar verða opinbera stefnu sína fyrr eða síðar. Það er og verður grundvallarspurning.

Spurt verður: Ætla þeir að vera þátttakendur í því að styrkja lýðræðið og lífkjörin hjá láglaunafólki í landinu eða ætla þeir að standa með samtökum atvinnurekenda í landinu sem eru í andstöðu við þessi meginmarkmið? Það er flest sem bendir til þess, vegna miðflokka eðlis Pírata.

Píratar munu auðvitað reyna eins og aðrir miðflokkar reyna að fela stefnu sína og eða stefnuleysi sitt eins lengi og það hentar flokknum. Fyrr eðar síðar kemur að vegamótum, Píratar verða að taka afstöðu.

Tilvera þessara miðflokka sem nú eru orðnir þrír í landinu launafólki í landinu og í ljós hefur þegar komið af orðum forystumönnum þessar tveggja miðflokka að þeir munu viðhalda styrkleika hægri flokksins í landinu eins og gamli Framsóknarflokkurinn.

Slá úr og í, lofa og svíkja. Allt gengur það út á það, að selja sig sem dýrast fyrir völd. Eðli miðflokka.

Stærstu mál Pírata um gegnsæi eru gömul baráttumaál vinstri flokka og það sama má segja um stjórnarskrármálið.

Píratar hafa ekki átt neina aðkomu að tillögum um nýja stjórnarskrá. Það voru fyrst og fremst vinstri menn úr ýmsum áttum sem lögðu grunninn að tillögum um nýja stjórnarskrá. Tillögur sem hægri flokkarnir sætta sig ekki við.

Birgitta Jónsdóttir, einn þriggja þingmanna Pírata, segir að því fylgi óraunveruleikatilfinning að sjá fylgi flokksins…
KJARNINN.IS
 
 
 

Tilvistarkreppa hjá ,,Bjarti framtíð"

  • Ég er á þeirri skoðun að ,,Björt framtíð" eigi í alvarlegri tilvistarkreppu.
    *
  • Það er einfaldlega ekki pláss fyrir þrjá miðjuflokka á Alþingi sem allir bera fram loðna stefnu sem hægt er að sveigja á alla kanta.

Píratarnir virðast skora hátt í skoðanakönnunum með ýmsar patentlausnir sem koma hinni raunverulegri tilveru hins sauðsvarta almennings ekkert við. Ungt fólk er fljótt að vaxa upp úr ,,poppmenningunni.

Vissulega eiga þessir miðjuflokkar eftir að berjast um atkvæðin og þeim mun takast að hirða slatta af atkvæðum sem hugsanlega hefðu fallið vinstri flokkum í skaut. Framsókn mun áfram róa á sömu mið og Sjálfstæðisflokkurinn.

Hvað sem forystumenn í þessum popp-miðflokkum segja, mun lífsbarátta almennings áfram snúast um að fá réttlátan skerf af þjóðarframleiðslunni.

Áfram verða fulltrúar atvinnurkenda á Alþingi sem hafa það markmið að tryggja hag fyrirtækjanna umfram launafólks.

Það mun áfram skipta launamenn máli að auka þjóðarframleiðsluna og krefjast þess, að í hvert skipti sem hugtakið ,,landsframleiðsla" er notuð í umræðunni verði hugtakið ,,Þjóðarframleiðsla" einnig nefnt í sömu andrá. Það er nauðsynlegt að almenningur skilji í hverju munurinn á þessum hugtökum.

Heiða Kristín Helgadóttir, sem stýrði Umræðunni, vikulegum þætti um stjórnmál á Stöð tvö, mun ekki…
KJARNINN.IS

mbl.is Heiða Kristín hætt hjá 365
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hafa verið byggðar margar brýr undanfarin ár

  • Bæði með mjög virku íþróttastarfi fatlaðra og einkum þroskahamlaðra. En einnig með sjónvarpsþættinum

„Með okkar augum“

Hefur hefur lokið göngu sinni þetta sumarið en 30. þátturinn var að renna sitt skeið. Þetta hafa yfirleitt verið mjög góðir þættir og fræðandi.


Einn mikilvægasti hluti þessara þátta finnst mér, hefur verið að sýna þroskahamlað fólk að störfum, þar sem hafa verið tekin stutt viðtöl við þessa einstaklinga.

En þessi hluti þáttanna hafa verið mjög mikilvægir finnst mér. Því þeir sýna mjög vel að margbreytilegt fólk getur vel unnið mikilvæg störf. Bara t.d. að grunnskólar gætu haft mikið gagn af slíkum einstaklingum við störf.

Ekki bara við að þrífa gólf heldur til að vera í samskiptum við nemendur með ýmsum hætti. Þar kæmu til greina störf í matsölum og jafnvel úti í frímínútum við gæslustörf og einnig til að vera í samskiptum við nemendur.

Jafnvel gætu þeir átt erindi inn í kennslustofur við sérstök tækifæri. En öll samskipti yrðu að vera í samstarfi með skólaliðum eða kennurum.

Þessi þáttur hefur örugglega byggt mikilvægar brýr í samfélaginu.

  


mbl.is Tóku vel á móti íslensku keppendunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvar er forsetinn?

  • Á meðan Vigdís Finnbogadóttir hefur verið mjög áberandi í stuðningsliði hinsegins fólks
    *
  • þá hefur Ólafur Ragnar gufað upp þegar honum hefur boðist að taka þátt í baráttu uppákomum hinsegins fólks.
    *
  • Þetta hefur komið fram í fréttum á árum áður.
    *
  • Því vaknar sú spurning hvort forsetinn sé haldinn einhverjum fordómum gagnvart þessum hluta þjóðarinnar.


mbl.is Mikilvægur móralskur stuðningur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er logið stanslaust að íslendingum

Jack Daniels  26. March 2015

 

Ásett verð er 195.000,- Sænskar krónur.

Ásett verð er 195.000,- Sænskar krónur.

Eins og flestir vinir mínir og margir sem fylgjast með mér, þá er vitað að ég er þessa dagana staddur í Svíþjóð í smá fríi.
Ég er á þriðja degi núna og svo furðulegt sem það er þá er ég nú þegar jákvæðari, bjartsýnni og meira lifandi heldur en ég hef verið í þrjú ár og fer bara batnandi.

Var talsvert á ferðinni í gær að skoða mig um í litla bænum sem ég er og nokkrir magnaðir hlutir sem ég hef komst að hérna.

Í fyrsta lagi fór ég og kíkti á nokkur hús sem eru til sölu hérna og ég er enn dragandi hökuna á eftir mér yfir hvað er hægt að fá ódýrar og fallegar eignir hérna, á fallegum stað jafnvel með æðislegu útsýni.
Hver væri ekki til í að EIGA rúmlega 100 fm hús með 66 fm bílskúr á 1000 fm lóð?
Jú, þið skulið halda ykkur.  Ásett verð er rétt um 3,3 milljónir íslenskar klakakrónur og kanski hægt að pína það niður í 2,8 með þrjósku.

Reiknaður rekstrarkosnaður á þessu húsi eru um 2.600 Sekr á mánuði að meðaltali sem gera rúmar 44.000,- á mánuði, en það er vatn, hiti og rafmagni.

66 fermetrar, upphitaðir.

66 fermetrar, upphitaðir.

Ég veit bara að ég er alveg til í að eiga svona hús, á svona stað og þar sem verðlag á mat er viðráðanlegt en ekki okrað á mér og logið að mér að matarverð á íslandi sé með því lægsta í heimi.
Hér fæst nefnilega heill, ferskur kjúklingur á rúmlega 800 kall íslenskar krónur, kílóaverðið var í kringum 600 kall.

10% þýskt nautahakk, 500 gr. er helmingi ódýrara en á íslandi.
Rúmlega eins kílóa bacon pakkning með þykkum og fallegum sneiðum kostaði rétt um þúsund kall.

Ég gæti haldið lengi áfram að telja upp verðlagið hérna en segi bara að lokum, þetta var ekki ódýrasta búðin á svæðinu og það er hægt að fá nánast alla matvöru í stórinnkaupum hér í Svíþjóð á helmingi minna verði en á íslandi.

Á íslandi er það lennska að ljúga að almenningi og blekkja með öllum ráðum hvað sem tautar og raular og fólk gleypir allt hrátt og gargar í heimsku sinni og blekkingarvímu, “ÍSLAND BEST Í HEIMI” meðan því er riðið í rassgatið svo undan blæðir.

 

Egið góðan dag þarna á spillingarskerinu.

 


Kviðverkir Hannesar Hólmsteins

  • Í áratugi hafa vansvefta íhaldsmenn á Íslandi verið að rembast eins og rjúpan við staurinn við að halda svefni.
    *
  • Allt vegna einhverja styrkja sem sagt er að fasíski íhaldsflokkurinn í Rússlandi á að  hafa sent velunnurum sínum hér upp á skerinu fyrir meira en hálfri öld.

Það truflar ekki vinstri sinnað fólk í dag hvað gert var í fortíðinni og hvað gert var við þessar rúplur.  Ef laust hefur Kjartan Ólafsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins reynt að segja rétt frá í grein í Morgunblaðinu 2006. Einnig hvernig þetta bar til.

  • Sósíalistaflokkurinn var barn síns tíma og allir vita hvernig hann var stofnaður og af hverjum. Það er fjallað um það í skólabókum.
    *
  • Rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn er einnig barn þess sama tíma og allir vita að gömlu nasistarnir gerðust þar félagar í maí 1940.
    *
  • Enn er þetta valdaflokkurinn á Íslandi með sömu kjörorðum og nasistaflokkurinn notaði fyrir stríð.

Við yngra fólk rétt komin á eftirlaunaaldur og höfum verið virk í verkalýðshreyfingunni og í pólitískum armi hreyfingarinnar einnig vitum ekkert um þetta fé.

Ekki hafa þessir aurar komið upp á yfirborðið.  Ekki angrar þetta okkur og það er óþarfi fyrir smiðssoninn að vera með stjörnu í brók vegna þeirra. En hann ku vera snillingur í fjármálum eins og aðrir hægrimenn

Nær væri fyrir hann og einnig ýmsa trúverðuga sagnfræðinga að skoða hvernig ýmis stjórnmálaöfl á vafasömum hægri kanti alheimsstjórnmálahreyfinganna hafa styrkt Íhaldsflokkinn og síðar Sjálfstæðisflokkinn á Íslandi rétt eins og einhverjir hafa styrkt vinstriflokkanna aðrir en verkalýðshreyfingin.

Þessir styrkir til Sjálfstæðisflokksins voru ekki bara í fortíðinni heldur virðast peningar enn streyma til þessa flokks og þá sennilegast í gegnum fyrirtæki íslensk og erlend stórfyrirtæki. 

Fyrirtæki eins og Acoa og Ríó tinto eru þekkt fyrir að bera fé á áhrifamenn í mörgum löndum. Því er bara rökrétt að álykta sem svo, að svo sé einnig á Íslandi.

A.m.k. væri það vert rannsóknarefni, að rannsakað væri hvernig Sjálfstæðisflokkurinn gat risið upp úr nánast gjaldþrota rústum við hrunið.

Eftir að upp komst um stórfellda fjármálaspillingu í starfsemi flokksins og hvernig íslensk fyrirtæki jusu fé í þennan flokk.

Ekki má heldur gleyma því, að tveir núverandi ráðherrar, Bjarni Benediktsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir  hafa nýlega setið ársfund hjá Bandaríska Repúblikanaflokknum án þess að nokkurntíma hafi verið gefnar opinberlegar skýringar á veru þeirra þar.

Eftir framgang þeirra í tjónkun við Bandarísk stórfyrirtæki eftir að þau komust í ríkisstjórn gefur það fullt tilefni til sérstakrar rannsóknar.  Það er ekki eins og flokkur þeirra sé með hreina samvisku er kemur að því að þiggja vafasamt fé að gjöf.

Ef eitthvað er eftir af þessum rúblum í fasteignum er það Samfylkingin sem nýtur góðs af þeim


Gamla aftaníossa stefnan vöknuð á ný í utanríkismálum

  • Og ræður nú ríkjum í utanríkismálum þessarar ríkisstjórnar sem er gjörólík þeirri stefnu sem vinstri stjórnin fylgdi og þeirri stefnu sem þjóðin kýs sem er hlutleysi. 

Er reyndi eftir megni að móta sjálfstæða stefnu í þessum málaflokki.  Jafnvel þótt þáverandi ráðherra hafi átt ansi erfitt með að slíta sig frá ESB sem var hin veika hlið málaflokksins á þeim tíma.

Núverandi ráðherra dansaði strax í takti með tilmælum bandaríkjamanna í öllum málum og hefur í raun aldrei komið fram með sjálfstæði á einu einasta sviði.

Þetta er auðvitað leiðarljós núverandi stjórnarflokka  eins og alltaf áður.

Ekki bara það, þetta er stjórnin sem þóttist ætla að vera sjálfstæð gagnvart ESB, en lætur þetta ríkja-samband stjórna sér í einu og öllu sem Ísland væri fullur aðili að ESB. Enda samkvæmt vilja USA.

  • Hann var með fyrstu stjórnmálamönnum sem mættu til Úkraínu og jós lofi á stjórnvöld þar á bæ, jafnvel þótt þar færu fasistar með völd er höfðu hrakið frá völdum annan spilltan fasista af rússnensku gerðinni. Allt samkvæmt ákveðinni rútínu til að skora prik vestan hafs.

Við á Íslandi sitjum undir allskonar áróðri um hvað er að gerast á Krímskaga og í Úkraínu bæði frá Bandaríkjunum og frá Rússlandi. Það eru a.m.k. heiftarleg átök á milli gömlu herveldanna um ítök í Evrópu.  Bæði þessi ríki eru alblóðug eftir stöðug manndráp í áratugi og kúgun á saklausu fólki.

Stefna vinstristjórnarinnar var að halda uppi hlutleysi í svona átakamálum gömlu stórveldanna  og  treystu greinilega hvorugu herveldinu.  Það er einnig sú stefna sem þjóðin kýs í utanríkismálum. Það er að sýna sjálfstæði þjóðarinnar.

En ekki gengur að láta viðskiptahagsmuni á hverjum tíma ráða stefnu þjóðarinnar. Slíkt háttarlag er óheiðarlegt í alla staði. 

Samt sem áður er það röng stefna að taka þátt í viðskiptaþvingunum  ESB og Bandaríkjanna gagnvart öðru herveldinu. Þetta er lýsandi dæmi um hversu hættulegt það er fyrir Ísland að fylgja einhverjum stórveldum og eða ríkjasamböndum í blindni. 

Af Grikklandsfárinu má sjá hverjir ráða ríkjasambandinu og hversu hættulegt það er. Íslendingar hafa þegar fundið smjörþefinn af þessum aðilum.

 


mbl.is Breyta ekki afstöðu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarlegur fjöldi fólks

  • Fyllti götur miðborgarinnar í dag, bæði í kvosinni og upp eftir Laugavegi og Skólavörðustíg. 
    *
  • Örugglega tugþúsundir, auðvitað fjölskyldufólk, unglingar  og túristar.
    *
  • Var þó engin sérstök dagskrá um miðjan daginn og engar auglýsingar sem hvöttu fólk til að fara í bæinn.
    *
  • Kanski eru þessar útihátíðaferðir að fara úr tísku hjá ungu fólki, enda gríðarlega dýrar skemmtanir  

Þessi mynd er reyndar frá Menningarnótt  

Það er aðeins stórhátíðir eins og menningarnótt,  gay pride, 1. maí  og  hugsanlega 17. júní  þar sem fleira fólk mætir í miðborgina. Ekki má gleyma síðasta kvennafrídegi og druslugöngu.

Það hefur verið vitað lengi,  að veðrið er að jafnaði best á höfuðborgarsvæðinu á þessum árstíma.  Enda er það er það mikill minnihluti fólks sem fer í langferðir á þessum tíma ársins. Á útihátíðum safnast minnihluti ungsfólks  sem sést best á þeim fjölda sem hafa mætt nú á þessa staði.

Á aldrinum 15 -  25 ára eru nálægt 43 þúsund einstaklingar, aðeins þriðjungur þeirra mætir á þessar útihátíðir um þessa helgi þar sem reikna má með einhverri unglingadrykkju.  

Reikna má sterklega með því, að öflug umræða um nauðganir hafi mikil áhrif á sókn fólks á skröllin og hvernig t.a.m. hvernig lögregluyfirvöld í eyjum ætlar sér að standa að löggæslu. 

Í mínum huga er ljóst að þar ráða hagsmunir gróðrapunga í eyjum ferðinni á kostnað ungmenna sem hafa síðustu árin sótt eyjar. Þar hefur orðið geysileg  fækkun á aðkomufólki. Það er fagnaðarefni á meðan hátíð eyjamanna er með því sniði sem þar hefur tíðkast.


mbl.is Fjallið, Ingó, Unnsteinn og Margeir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott væri að fá nánari skýringar

  • Hjá formanni þjóðhátíðarinnar í eyjum.

Þegar hann segir að, ,,Það eru fullt af kon­um hérna að skemmta, á einn eða ann­an hátt,“ seg­ir Birg­ir Guðjóns­son, formaður þjóðhátíðar­nefnd­ar.

Þetta er auðvitað sérkennileg framsetning hjá blessuðum manninum í ljósi umræðunnar.

En það er staðreynd að ,,Þjóðhátíðiin" í eyjum er mesta brennivínshátíðin í landinu og þar gerist eitt og annað miður skemmtilegt eins nauðganir.

 

En nauðganir á þessari hátíð hafa verið mjög margar ár hvert og nánast alltaf hefur verið reynt að gera sem minnst úr þessu ofbeldi sem þarna á sér stað. Sem er auðvitað fastur fylgifiskur fyllisamkomu að þessari gerð.

Nú á s.s. að reyna að þagga þessi mál formlega, eins og hægt til að reyna leyna óskapnaðinum og losa þá aðila sem að fylliríinu standa undan eðlilegu aðhaldi fjölmiðla. 


mbl.is „Konur skemmta á einn eða annan hátt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband