Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
8.4.2013 | 17:54
e2 - e4
Næsti leikur hjá hæstvirtum hæstarréttarlögmönnunum mun væntanlega ganga út á það að áfrýja til Hæstaréttar. Ég dáist af staðfestu dómarans að gefa ekki frí, það er eflaust ekki einfalt að standa gegn stjörnum sem þessum í lögmannastétt.
Allt verður þetta væntanlega gert án þess að ganga á rétt sakborninga. Annars er málið dautt.
Dómarinn sagði nei | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2013 | 14:58
Það er sitt hvað, kæfa og eða smjörlíki
- Eitt er að segja eitthvað vegna ákvarðanna sem teknar eru eins og af þessum lögmönnum og eða raunveruleikinn sem er á bak við svona ákvörðun.
Ég hef ekki orðið var við, að málin og eða ferli þeirra fyrir dómstólum hafi verið eitthvað merkilegri og eða þótt göfugri í huga þjóðarinnar vegna þátttöku þessara manna í þeim og verið þar lögmenn í aðalhlutverki.
Ég veit auðvitað ekkert um ástæður þess að þeir vilji hætta.
E.t.v. líta þeir þegar svo á að þeir myndu tapa þessu máli og vildu ekki taka þátt þess vegna.
Eða bara af þeirri einföldu ástæðu að þeir óttist að fá ekki greitt fyrir vinnu sína. Að órannsökuðu máli myndi ég telja það lang líklegustu ástæðuna.
Þeir hafa eflaust tekið þátt í ýmsu mullulegu áður fyrir dómstólum og kalla því ekki allt ömmu sína enda hoknir af reynslu báðir tveir.
Segja sig frá Al Thani málinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
- Þetta með grunngildi Sjálfstæðisflokksins er að þau eiga nákvæmlega ekkert skylt við grunngildi venjulegra flokka t.d. á norðurlöndum. Það verður að leita uppi verulega hægri sinnaða flokka frjálshyggjumanna til að finna svipaða stefnu.
Þá er helst að finna í Bandaríkjunum og t.d. í Ísrael, þar sem hægrisinnuðustu flokkarnir jaðra við að vera fasistaflokkar. En Sjálfstæðisflokkurinn sækir línuna til Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum.
Ýmsir leiðtogar Sjálfstæðisflokksins eru fastagestir á stórfundum þess flokks. Vandinn hjá Bjarna er einnig það innanmein sem komið er upp í flokknum sem er að flokksfélagarnir eru mjög margir hættir að trúa á þessi gildi eftir hrunið.
Sérstaklega þegar það er staðreynd að margir helstu forystumenn flokksins sem voru á kafi í spillingunni fyrir hrun eru enn í fremstu röð á framboðslistum. Þeir eru a.m.k. ekki óumdeildir. Flokkurinn og leiðtogar hans hafa ekki viðurkennt stjórnarfarsleg mistök flokksins er leiddi til þess að landið fór á hliðina. Það var reyndar ljóst löngu fyrir hrun og vitað var um væntanlega kollsteypu strax 2006 og ekkert var að gert. Þjóðin fór í kosningar 2007 án þess að vita af snjóhengjunni framundan
Þá hafa þingmenn og margir frambjóðendur flokksins sýnt af sér dæmalaust ábyrgðarleysi í störfum Alþingis í vetur og nú fram á vor, þar flokkurinn fór í vörn fyrir þá sérhagsmuna aðila sem hafa styrkt flokkinn mest fjárhagslega og þingmenn hans. Á þetta háttarlag horfir almenningur og flokksfélagar.
Þá hafa frambjóðenndir flokksins sýnt af sér gríðarlegan hroka í flestum viðtölum fjölmiðla. Sérstakur er hroki Hönnu Birnu fyrrum borgarstjóra. Hún hefur sýnt það, að hún er algjörlega óhæf til að vera leiðtogi stjórnmálaflokks.
Bjarni: Trúi á stefnuna fram í rauðan dauðann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.4.2013 | 13:39
Hugmyndir Framsóknarflokks eru ekki nýjar
- A.m.k. þrír aðrir stjórnmálflokkar hafa verið að skoða þessi sömu hugmyndir og þá möguleika sem Framsóknarflokkur hampar framan í fólk sem sínar.
. - Flokkarnir hafa skoðað möguleikanna sem gætu skapast þegar farið verður í það verk, að leyfa kröfuhöfum að eiga viðræður við seðlabankann og íslensk stjórnvöld hvað það muni kosta þessa aðila að ná eigum sínum út úr þrotabúunum.
Eini munurinn á málflutningi Sigmundar Davíðs og annara flokksformanna er sá að forystumenn stjórnarflokkanna hafa viljað fara varlega í yfirlýsingar og hafa ekki viljað gefa fólki falskar væntingar því þetta er alls ekki jafn gefið og frammaranir halda fram og þess vegna afar óábyrgt að gefa slíkar vonir. Reyndar hefur seðlabankstjórinn fyrir mörgum mánuðum sagt að allt að 70% afföll af eigum kröfuhafanna væru sanngjarnar.
En það var núverandi ríkisstjórn sem bjó til þessa stöðu og tæki sem Sigmundur lýsir að séu svo sterk að geta ekki annað en gefið af sér verulegan pening.Það var núverandi ríkisstjórn sem með lögum í mars fyrir ári felldi erlendar eignir þrotabúanna undir gjaldeyrishöftin GEGN vilja Framsóknar sem sat hjá og Sjálfstæðisflokks sem greiddi atkvæði á móti, og skapaði með því þessa sterku samningsstöðu sem samt enginn veit enn hvað fæst útúr stöðunni.
Þá er einnig mismunandi hvernig flokkarnir vilja ráðstafa þessu fé. Framsóknarmenn og raunar sjálfstæðismenn einnig vilja að þeir sem skulda mest eigi að fá mesta leiðréttingu.
Þ.e.a.s. fólk sem er með miklar tekjur og miklar skuldir, en er ekki með sínar skuldir í vanskilum. Fólk sem býr í stórum húsum og er með a.m.k. tvo dýra bíla á fóðrum. Sama hálaunafólkið sem stendur að "Hagsmunasamtökum heimilanna"
En skattahugmyndir Sjálfstæðisflokksins í þessum húsnæðismálum eru venjulegum launamönnum hættulegar sem í raun mundi færa þessi mál í gamlan farveg misréttis í landinu. Sumir munu njóta en venjulegir launamenn bera á herðum sér með auknum skattagreiðslum.
En vinstri flokkarnir vilja skapa nýtt félagslegt húsnæðiskerfi í gjöbreyttri mynd til að bjarga láglaunafólki frá ánauð húsnæðismálanna sem þetta fólk byrjaði að lenda í strax upp úr 2002 eftir að félagslega kerfið var lagt af 1998 og afleiðingar af þeirri ákvörðun fóru að koma í ljós samfara gríðarlega háum launamannasköttum.
Þá vilja þessir stjórnarflokkar einnig koma til móts við það fólk sem keypti sér íbúð síðustu u.þ.b. 4 síðustu árin fyrir hrun á bóluverði með bóluháum lánum.
Framsóknarflokkurinn hefur aðeins sagt hvað hann vill gera, en hann hefur enn ekki sýnt fram á að þetta sé raunverulegur möguleiki í þeirri mynd sem flokkurinn lýsir fjálglega. Þar stendur einmitt hnífurinn í kúnni og forystumenn Framsóknarflokksins leyfa sér að þyrla upp lýðskrumi sem auðvitað þessum mönnum til skammar.
Ljóst er þó, að semja verður um þessi mál vegna hugsanlegra dómsmála og seðlabankinn hefur í marga mánuði verið með ákveðnar þreifingar í samráði með ríkisstjórninni. Síðustu fréttir eru þær að til stendur að ráða viðurkenndan samningamann á alþjóðavísu til verksins.
- Þá er einnig ljóst og það hefur þjóðin lært, að þetta mál verður í höndum Alþingis en ekki í höndum nýrrar ríkisstjórnar.
- .
- Þetta er of stórt mál fyrir einstaka ríkisstjórn.
Dugar fyrir skuldaleiðréttingu og meiru til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)