Færsluflokkur: Kjaramál
6.6.2016 | 20:43
Flugumferðastjórar eru ekki aðilar að Salek
Það er ljóst, að allar götur frá 1990 hafa samtök atvinnurekenda og Verkamannasambandið eins og það hét þá unnið að því að hrifsa samnings- og verkfallsréttinn af fámennari stéttarfélögum.
Lögin um verkföll og vinnudeilur frá 1938 hafa verið margbrotin á fjölmörgum félögum.
Bæði á félögum innan ASÍ og utan t.d. í félögum opinberra starfsmanna. Þessir aðilar hafa í gegnum tíðina haft óþolandi afskipti af kjaramálum kennara.
Þessu salek dæmi verður ekki neytt upp á félög með valdi, það verður að gera samninga um aðild félaga að slíkum samningum. Í þeim samningum verður einnig að vera heiðarleg ákvæði um hvernig einstök félög geta sagt sig frá slíku samkomulagi.
Það verður að taka tillit til þess, að flugumferðarstjórar eru ekki í verkfalli þeir hafa aðeins ákveðið að vinna ekki yfirvinnu.
Prófsteinn á Salek-samkomulagið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2016 | 18:08
Það eru tveir aðilar að þessari umræðu um kaup og kjör.
- Það er ekki hægt að krefjast þess að launafólk vinni yfirvinnu ef ekki er um neyðartilfelli að ræða.
Íslensku flugfélögin segja yfirvinnubann flugumferðarstjóra vera farin að hafa veruleg áhrif á starfsemi sína.
Það er einmitt það sem flugumferðarstjórar eru að gera sem er að láta flugfélögin finna fyrir mikilvægi flugumferðarstjóra.
Flugfélögin segja að yfirvinnuhöfnun flugumferðarstjóra sé farin að hafa neikvæð áhrif á heildarupplifun farþega sem verða fyrir seinkunum vegna aðgerðanna sé afar neikvæð og bitni það á orðstír félaganna.
Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að svo virðist sem að engar viðræður séu í gangi. Það er auðvelt fyrir flugfélögin að tryggja það að farið verði í raunaverulegar viðræður við þessa mikilvægu starfsmenn. Félögin verða sjálf að koma að þessu máli, annars gerist ekkert.
Það er réttur launafólks að láta atvinnurekendur finna fyrir mikilvægi sínu er reyna að komast hjá því að ræða við þá á eðlilegum nótum.
Það hefur lengi verið aðferð samtaka atvinnurekenda á Íslandi að færa kjaraviðræður eins langt frá raunverulegum launagreiðendum eins og hægt er.
Þannig að samningamenn atvinnurekenda hafa enga hagsmuni af því hvernig semst eða hvort semst..
Segja aðgerðirnar skaðlegar orðstírnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2016 | 16:38
Kröfur fólks eru ótúlegar
Markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir vill setja gerfigras á alla knattspyrnuvelli.
Væntanlega er hún með það í huga að borga þetta sjálf
Ég vil gervigrasvæða Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2016 | 12:39
Trúgjarnir Framsóknarmenn og hinir
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að hann hafi aldrei orðið vitni viðlíkri foringjadýrkun og virðist vera hjá fámennum en duglegum hópi innan Framsóknarflokksins gagnvart Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Þyrftu að flýta haustfundinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2016 | 11:50
Framsóknarflokkurinn er með lík í lestinni
- Það er greinilega bullandi óáægja með formanninn í Framsóknarflokknum eftir þetta síðasta afrek hans í gær
Það ljóst, að þótt varaformaður Framsóknarflokksinns og núverandi forsætisráðherra stigi nú varlega til jarðar og hafi marg sagt það, að hann muni styðja Sigmund Davíð til allra góðra verka.
Þá er hann verulega óánægður með alla framkomu hans í þessum Panamamálum. Það kemur hér greinilega í ljós.
Aðspurður um hvað honum hafi mislíkað helst við viðbrögð formannsins við uppljóstrunum um aflandsfélagseign hans í frægu viðtali sem birtist í Kastljósi sagði Sigurður Ingi að viðbrögðin hefðu getað verið öll önnur en þau voru. Sigmundur Davíð hafi getað upplýst flokkinn og þjóðina alla.
- Hefði bara viljað að Sigmundur Davíð væri heiðarlegur
Sigmundur Davíð hafði haldið að hann gæti útskýrt fyrir fjölmiðlamönnum hvernig í pottinn hafi verið búið. Það hafi hins vegar ekki skipt neinu máli. Betra hefði verið ef Sigmundur Davíð hefði komið strax fram og skýrt málið, sagði Sigurður Ingi.
Kurteislega orðað en alveg skýrt. Framundan er landsfundur haldinn fyrir kosningar og þá er líklegt að valin verði ný forysta og nánustu félagar Sigmundar Davíðs verði að víkja fyrir öðru fólki.
Eftir myndum að dæma af fólki á þessum miðstjórnarfundi virðast miðstjórnarmenn á þessum bæ vera eftirlaunamenn að mestu.
Geta ekki hætt við kosningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2016 | 20:15
sjaldan veldur einn þá tveir deila
Þá hefur þessi maður ítrekað sagt þjóðinni ósatt og lofað hlutum sem ekki hefur staðið til að standa við. Hann hefur haldið uppi óslitnum áróðri um eigin ágæti fyrir þjóðinni. Kosningaloforð sem bar á borð fyrir þjóðin stóð aldrei til að standa við.
En Framsóknarmenn kjósa auðvitað að trúa þessum manni og meðan svo er verður það stóra vandamál þessa flokks í tilefni af 100 ára afmæli hans.
Nú ætla þeir undir forystu Sigmundar Davíðs væntanlega að koma með nýjar loforðabunur fyrir næstu kosningar. Síðan er það ansi klént að þakka Framsóknarflokknum fyrir góða vinnu fyrri ríkisstjórnar.
Báðar þessar ríkisstjórnir hafa gert góða hluti en þessi seinni stjórn hefur einnig gert marga mjög alvarlega hluti, eins og að mismuna fólki alvarlega.
Hafna fullyrðingum Sigmundar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2016 | 23:19
Mér fannst enginn frambjóðenda standa sig virkilega vel
Davíð var mjög á varðbergi með að tala ekki niður til annarra á þessum framboðsfundi. Það kom í raun ekki fyrir hann nema tvisvar.
En hann gætti sín ekki á Ástþóri, það kom fram í svipbrigðum hans og viðmóti.
En það einkenndi Davíð mjög, að hann svaraði í raun aldrei neinni spurningu beint. Hann notaði gamla pólitíska trixið að svara með því að fara ævinlega út í aðra sálma. Þetta var auðvitað erfið staða hjá Davíð.
Guðni var einnig mjög á varðbergi, hann gætti sín á því að tala ekki af sér. Sem kom niður á því að sem hann gæti hafa sagt með svörum sínum.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Andra.
Ekki mikill veigur í óumdeildum forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.6.2016 | 10:00
Fyrirsögn í Trump-stíl
- Það var alltaf ljóst að ævintýralegt fylgi Guðna miðað við fyrstu fylgistölur myndi dala og að fylgi við frambjóðendur muni jafnast.
Það sem verður að teljast frétt eftir þessa könnun er að fylgi við Davíð Oddsson minnkar
og er hann að missa hlutfallslega meira fylgi en Guðni.
Það gerir það, þrátt fyrir að miklir fjármunir fylgi því framboði og einnig heill stjórnmálaflokkur, samtök útgerðarmanna og Morgunblaðið standi þar á bak við. Enda um pólitíkst framboð að ræða og römm hagsmunagæsla.
Það er auðvitað eðlilegt að framlag blaðsins sé reiknað sem peningalegt framlag. Þar sem blaðinu sé dreift sem fríblaði upp fullu að kosningaáróðri. Annað væri fullkomlega óeðlilegt. E.t.v. verður þetta framlag kært.
Einn óvandaður aðili dreifði þessum útbelgda Moggasnepli í alla póstkassana í stigahúsinu í morgun.
Þá var dagblaðakassinn fylltur að einhverjum blöðum sem kenna sig við sjómannadaginn. En auðvitað stendur útgerðin að öllum þessum áróðri.
Póstkassarnir eru bara fyrir nauðsynlegan bréfapóst og þeir eru merktir með sérstökum merkjum um að ekki megi setja í kassana ómerktan póst.
Þá eru sumir merktir þannig að fríblöðum er hafnað og nefnd sem dæmi Fréttatíminn og Morgunblaðið. Þetta er alveg ótrúleg frekja að virða ekki kröfur eigenda pðóstkassana, því fjölskyldur þurfa ekki að taka sér nema vikufrí þá kemst enginn nauðsynlegur póstur lengur í kassana fyrir þykkum fríblöðum sem engin les.
Guðni missir fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2016 | 12:03
Lítið gert úr botnleðjunni
- Mogginn virðist gera sitt til að gera sem minnst úr þessu máli Björgólfsfeðga.
Feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson tengjast að minnsta kosti um fimmtíu aflandsfélögum í skattaskjólum sem stofnuð voru í gegnum lögfræðistofuna Mossack Fonseca í Panama.
Þetta kemur fram í umfjöllun Stundarinnar um viðskipti Björgólfsfeðga upp úr Panamaskjölunum. Umfjöllunin er unnin í samvinnu við Reykjavík Media ehf. sem heldur utan um miðlun upplýsinga upp úr Panamagögnunum á Íslandi.
Hér á síðum Mbl er eins lítið gert úr þessu máli og hægt er, en skítalyktin er auðvitað alveg megn þannig að miðillinn kemst ekki hjá að minnast á fréttina.
- En fréttinn fer hér niður síðurnar frussandi eins og þynnsti renniskítur, svo mikill er hraðinn.
* - Á miðjum degi í dag var fréttin horfin.
Það væri auðvitað vert að skoða það hvernig þetta siðleysi tengist Icesave reikningum Landsbankans hf. Ásamt pólitískri ábyrgð forseta frambjóðandans á málinu á fyrri tíð er hann var forsætisráðherra.
Björgólfsfeðgar oft í Panamaskjölum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Sjálfstæðisflokkurinn og eða Morgunblaðið ætti síst allra aðila að státa sig af frammistöðu sinni í þorskastríðunum.
* - Því þessir aðilar beittu sér að öllu afli gegn baráttu almennings fyrir því að landhelgin yrði færð út í 12 mílur og síðar í 50 mílur.
Sjálfstæðisflokkurinn sveik þjóðina í tvígang með því að sleikja rassgatið á breska herveldinu
Ekki kom verndarinn íslensku þjóðinni til verndar þegar bresk herskip réðust á íslensk varðskip. Það var stórlega látið undan kröfum breta með dyggri aðstoð úr vestri.
Það mátti ekki sýna Nató ríkinu Bretlandi þá staðfestu að Ísland stæði við þann ásetning sinn að bæta hag þjóðar, sjómanna og útgerðar með því að færa út landhelgina.
Þetta hefur sagnfræðingurinn vitað allt um. Auðvitað einnig frambjóðandi útgerðarinnar sem ævinlega hefur farið fram með líkum hætti og Trump gerir í bandaríkjunum.
Veður áfram með allskonar hálfsannleik og einföldum klysjum alveg án þess að hirt sé um að verið sé að segja sannleikann. Hann virðist auka atriði.
Það er ekki fyrr enn mörgum árum síðar að Sjálfstæðisflokkurinn gat ekki myndað ríkisstjórn nema að það yrði sett á oddinn að færa landhelgina út í 200 mílur, enda höfðu þá þegar skapast mörg fordæmi fyrir því að ríki færðu út landhelgi sína í 200 mílur og almennur skilningur á því á alþjóðlegum vettvangi.
Sjálfstæðisflokkurinn og forystumenn hans ásamt málgögnunum eiga skammast sín fyrir andstöðu sína gegn útfærsluna á landhelgi Íslands. En þessir aðilar löguðu stefnu sína um síðir sem betur fer.
En ef gamlir forystumenn og ritstjórar hefðu eitthvað milli eyrnana myndu þeir ekki minnast á þetta mál. Heldur ekki á ESB því þessi flokkur hefur í tvö skipti dregið þjóðina inn í þetta ríkjasamband. Þá var ævinlega til að hugnast útgerðinni í landinu
Í þau skipti var ekki hugað að hagsmunum almennings og ekki fengu kjósendur að sýna sína skoðun á þessum gjörningum.
Bæði þessi skref íslensku þjóðarinnar sem tekin hafa verið inn í ESB á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins hafa skaðað almenning mjög alvarlega með miklu eignatjóni.
Hér eru myndir af þeim foringjum þessa flokks sem stjórnaði þjóðinni þegar þessir atburðir gerðust. Bjarni sagði í ræðum og ritum að við EFTA - aðildina yrði Ísland með auka aðild að EB eða ESB eins og það nefnt í dag ríkjasambandið. Þá gekkst Ísland að hluta undir yfirþjóðlegt vald ríkjasambandsins og enn frekar með EES aðildinni og Sengen.
Var ekki að tala um heimskt fólk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)