1.8.2013 | 08:13
Varla pláss fyrir almenna sundgesti í Grafarvogslaug
- Þegar skólasund er í fullum gangi
. - Það er ekki nýtt vandamál, borgarstjórn hefur ekki í gegnum tíðina haft áhuga á uppbyggingu sundlauga og er eftirbátur annarra sveitarfélaga í þeim efnum.
Nýja sundlaugin í Mosfellsbæ
Reykjavíkurborg hefur alla tíð staðið sig illa í sundlaugarmálum breytir þá engu hvaða flokkar mynda meirihluta í borgarstjórn. Það er t.d. hörmulegt að koma á suma sundstaði borgarinnar.
Ég vil bara nefna aðbúnaðinn í Vesturbæjarlauginni. Þar er sturtu-aðstaðan hjá körlunum fyrir neðan allar hellur og getur ekki staðist reglur. Þá er laugin sjálf til skammar.
Ástandið í Grafarvogslaug er þannig á vetrum þegar skólasund er í gangi, að þá er ekki pláss fyrir almenna sundgesti svo vel sé. Laugagestir verða oft að sæta lagi til að geta fengið að synda. Það er bara staðreynd að það vantar sundlaugar í mörg hverfi borgarinnar. Það er ekkert nýtt.
Þessi mál standa miklu betur í öllum nágrannasveitarfélögunum og einnig almennt á landsbyggðinni. Í Mosfellsbæ eru þrjár góðar sundlaugar fyrir utan tvær minni laugar.
Það er vonandi að laugin sem á að byggja í Úlfarsárdal fari fljótt á stað og verði fljót í byggingu. Sú laug á að þjóna byggðinni undir suðurhlíðum Úfarsfells og í Grafarholti
Fara til Mosfellsbæjar í skólasund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Menntun og skóli | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.