24.8.2013 | 09:26
Eignastrípun Íslands
- Fyrsta skipulega atlaga Eimreiðarelítunnar að fjármálakerfinu. Rosaleg ritgerð eftir Þorvald Logason
- Algjör skyldulesning
Saga sparisjóðanna frá 1985 er lýsandi fyrir aðferðarfræðina sem beitt var við eignastrípun Íslands, þegar ryksuguð voru verðmætin úr helstu fyrirtækjum, stofnunum og sjóðum landsins í almannaeign og yfirráðum náð yfir verðmætustu auðlindum þjóðarinnar.
Aðferðarfræðin byggði á því að elítur reyna að tryggja sér völd á öllum grundvallarvaldssviðum samfélagsins og yfir fé annarra (t.d. sjóðum). Völdin nýta valdaelítur í eigin þágu, iðulega með það að lokatakmarki að eigna sér fé annarra.
Til að gera þetta mögulegt þurfa valdaelíturnar að ná völdum í þeim lykilstofnunum samfélagsins sem stýra löggjöf, framkvæmd og eftirliti ásamt þekkingarvaldinu
(háskólum, fjölmiðlum og lögskýringarvaldi).
http://spillingin.is/sites/spillingin.is/files/eignastripun_sparisjodanna.pdf
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:34 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.