27.5.2014 | 13:00
Franski Framsóknarflokkurinn vinnur stórsigur
- Í kosningum til Evrópuþingsins
Þegar gerður er samanburður á stefnu Framsóknarflokksins og Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi má sjá að þetta eru í raun systurflokkar. Framsóknarflokkurinn daðrar við þjóðernispopúlisma, bæði með ummælum sínum um mosku í Reykjavík.
Að flokksforystann skuli ekki getað verið heil í andstöðu við oddvita Framsóknar í Reykjavík segir sína sögu. Þetta er ekkert nýtt hjá þessum flokki og hefur magnast verulega með tilkomu Sigmundar Davíðs í stjórnmálin.
Andstæðingar ESB með um 130 þingmenn
Andstæðingar Evrópusambandsins ná í kringum 130 þingmönnum inn á Evrópuþingið samkvæmt fyrstu niðurstöðum kosninga til þingsins, en kosningunum lauk í kvöld. Kristilegir demókratar eru með stærsta hópinn, 211 þingmenn, en Sósíalistar með 193.
Þessi þjóðernisfnykur hefur alltaf loðað við Framsóknarflokkinn sem á uppvaxtarárum flokksins þótti ekki óeðlilegur. Jafnvel nú í nútímanum var fyrrum formanni flokksins borið á brýn, Guðna Ágústsyni að hafa verið félagi í ungliðahreyfingu nasista í Noregi
Heimsýn er greinilega svona þjóðernis félagsskapur og hagsmunagæsluaðili fyrir stórkapitalið í útvegi og fyrir stórbændur og eigendur afurðastöðva í landbúnaði.
Margt gott fólk hefur haft traust á þessum félagsskap og ekki áttað sig því hverskonar félagsskapur Heimsýn er í raun.
Munaði bara einu atkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál, Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 13:21 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.