Öflugur forystumaður

  • Fram er kominn nýr öflugur leiðtogi í verkalýðshreyfingunni sem er líkleg til að ná árangri og virðist hafa fulla trú á því sem hún er að gera.

Það er Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, það geislar af henni baráttu-gleðin enda hefur hún góðan málstað að verja.

Hún minnir mig óneitanlega ansi mikið á Bjarnfríði Leósdóttur sem nú er nýlega fallin frá.

Báðar mjög ákveðnar, leiftrandi greindar og bráð mælskar. Þær eiga það einnig sameiginlegt að setja fram hlutina í einfaldri framsetningu sem allir skilja. Þ.e.a.s. það grundvallarmál að allir geti lifað á dagvinnulaunum.

Hún á eftir að taka til hendinni og ég efast ekki um að félagar hennar fylkja sér á bak við hana.

Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir að stokka verði verulega upp í samf
élaginu ef allt fari í kalda kol við það að greiða laun sem duga fyrir framfærslu.
RUV.IS

mbl.is Atkvæðagreiðsla SGS hefst á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband