14.4.2015 | 23:49
Ferðaþjónustan getur bara gert samninga og málið leyst
- Það er ekkert sem bannar fyrirtækjunum í ferðaþjónustunni að semja við Starfsgreinasambandið.
* - Ef þessi ferðaþjónustufyrirtæki ráða ekki við að greiða sínu starfsfólki 300 þúsund á mánuði að þremur árum liðnum, er eins gott að loka þessari starfsgrein.
Það er nákvæmlega engin þörf fyrir fyrirtæki í landinu sem ekki ráða við þessi starfskjör. Fyrirtækin verða bara að gera sér fyrir þeirri staðreynd, að ekki gengur að byggja upp atvinnugrein sem ekki ræður við að greiða þessi laun.
Fyrirtækin verða bara að fækka fólki en greiða því fólki sem eftir stendur í greininni hærri laun. Það vill svo til, að það eru fyrst og fremst konur sem starfa í greininni einkum á landsbyggðinni.
Það sem meira er, að þetta er eina atvinnugreinin sem lifir við þann lúxus að mega velt a auknum kostnaði út í verðlagið án þess að það hafi áhrif á verðbólgu innanlands.
Rothögg fyrir ferðaþjónustuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 23:51 | Facebook
Athugasemdir
Mikið rétt þeim fyrirtækjum sem ekki geta greitt mannsæmandi laun á loka. Ferðaþjónustan er þar ekki undanskilin.
Filippus Jóhannsson. (IP-tala skráð) 15.4.2015 kl. 00:09
Það á að loka svona fyrirtækjum strax. Ef 300.000 eru of há laun að greiða þá er ekki grundvöllur fyrir rekstri þeirra.
Guðlaugur Hermannsson, 15.4.2015 kl. 12:36
Stundum segja þeir sannleikann framsóknarmenn, en það er sjaldgæft
Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Framsóknarflokksins flutti ræðu á Alþingi í kvöld þar sem hann upplýsti að ástandið í ferðaþjónustu væri skelfilegt, einkum í því sem varðar ólögleg gistirými. Hann hafði fyrir því margvíslegar heimildir, allt frá forsvarsmönnum ferðaþjónustunnar til leigubílstjóra.
Til umræðu var frumvarp Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra til laga um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahaldi. Þorsteinn kvaddi sér hljóðs og kom víða við í ræðu sinni.
Herör gegn ólöglegri gistingu
Útgangspunktur Þorsteins var sá að hann telur sig hafa vissu fyrir því að óskráðar gistingar yfir allt árið á höfuðborgarsvæðinu væru verulegar, jafn margar og í hótelherbergjum. Þetta var honum tjáð af rekstraraðila í þeirri grein. Þorsteinn vill að lögreglunni verði fengið fjármagn til að rannsaka málið.
„Ég vil hvetja til þess að það verði gerð gangskör í því að lögreglunni verði veitt fjármagn til þess að fara í alvöru eftirlit með þessum óskráðu gistingum. Ef maður fer í AirBnB og flettir þar tekur maður eftir því að mjög skráður hluti sem þar er er á heilsárs basís og hann er óskráður. Ég hef talað við fyrrum félaga mína í lögreglunni spurt þá að því hvort gerlegt sé að halda uppi eftirliti með þessum gististöðum samhliða hefðbundnu eftirliti, eftirlitsakstri og menn hafa fullyrt við mig að það sé alveg hægt. Heimilisföng þessara gistinga liggja fyrir áAirBnB og mér er tjáð það af hálfu forystumanna samtaka ferðaþjónustunnar að SAF hafi sent heimilisfangalista til ráðuneytisins. Mönnum ætti þá að vera hægur vandinn að taka hvert póstnúmer fyrir og ganga úr skugga um það að gistimöguleikar í þessum póstnúmerum séu rétt skráðir og sekta menn sem ekki uppfylla þetta,“ sagði Þorsteinn.
Greiðslur sem aldrei sjást hér á landi
Og þingmaðurinn hélt áfram: „Ég hef líka ákveðna vissu fyrir því að þessir gististaðir sem ekki eru skráðir taki við kreditkortagreiðslum en séu ekki við neina saminga við innlend kreditkortafyrirtæki. Þeir eru með samninga við kreditkortafyrirtæki erlendis, nota svokallað PayPal-kerfi, það verður til þess að þessar greiðslur sjást aldrei á Íslandi. Og þess vegna hvet ég líka til þess að farið verði út í samvinnu við kreditkortafyrirtækin svo hægt verði að stemma þessa á að ósi. Það er svo ótrúlega vont ástand í þessari grein.“
Hraðbankar tæmdir
Og Þorsteinn bætti því við og upplýsti að allir hraðbankar tæmdust í Reykjavík yfir páska. Þorsteinn taldi sig vita hvers vegna það hefði komið til:
„Ég hvet menn líka til að taka nótis af því að um síðustu páska tæmdust allir hraðbankar í Reykjavík. Og það skyldi þá ekki vera vegna þess, ein ástæðan, að þegar ferðamenn vilja gera upp þá sé þeim sagt að posinn sé bilaður? Og að þetta með öðru hafi valdið því að hraðbankar tæmdust um síðustu páska?“
Lögreglumenn fari hús úr húsi
Þorsteinn sagðist vilja gera sitt til að frumvarp ráðherra ætti greiða leið í gegnum þingið en ítrekað hvatningu sína til Ragnheiðar Elínar, og vildi að hún tæki höndum saman við innanríkisráðherra, og tryggði ráðherra fjármagn. „Til þess að fara hús úr húsi eftirlit með þessari starfsemi. Það skiptir okkur öll það miklu máli. Ástandið eins og það er núna er óþolandi. Mér finnst eins og við séum að byrja á öfugum enda. Við verðum að ráðast gegn þeim sem eru með heilsársgistingar og fá þá uppá yfirborðið.“
Kristbjörn Árnason, 15.4.2015 kl. 23:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.