27.4.2015 | 11:39
Spilling virðist vera enn í gangi meðal stjórnmálamanna
- Á árunum fyrir hrun hafði komið í ljós að meðal stjórnmálamanna sem tilheyrðu gömlu valdaflokkunum á Íslandi að veruleg spilling var daglegt brauð og óeðlilegt samkrull með fyrirtækjum.
* - Sérstaklega var þetta síðan áberandi í tengslum við prófkjörskanditata í Sjálfstæðisflokki og í Framsóknarflokki.
* - En einnig var borið mikið fé á flokkanna sjálfa og er það enn þótt stór hluti af þeim styrkjum séu nú neðanjarðar.
Þ.e.a.s. í þeim sömu stjórnmálaflokkum og nú standa að ríkisstjórn Íslands ríkti skelfilegt ástand.
Flokkarnir virtust geta tekið við ómældu fé frá ýmsum hagsmuna aðilum í landinu og jafnvel erlendis frá.
Þar til viðbótar var borið fé á marga aðila sem voru líklegir til að ná það langt í prófkjörum að þeir næðu kjöri bæði á þing og í t.d. borgarstjórn þar sem óeðlilegur fjáraustur var borinn í(Samfylkingarmenn).
Þar komu einnig til sögunar mjög rík tengsl voru við fyrirtæki í sjávarútvegi og við einkafyrirtæki í orkugeiranum við þessa tvo gömlu flokka og eru enn.
Enn virðist sem veruleg spilling geti verið grasser-andi þrátt fyrir hrunið og alla spillinguna sem þá kom í ljós.
Því er mikilvægt að farið verði í það verkefni á vegum Alþingis og samtaka sveitarfélaga að uppræta slíka spillingu.
Það er einnig alvarlegt umhugsunarefni, hvers vegna það er ekki rannsakað hvort einhver spilling eigi sér stað í ýmsum ferlinum þegar ákveðið er að gera stóra samninga við erlenda auðhringa um orkusölu og fjölmörg atriði önnur.
Einnig hvort allir orkusamningar séu eðlilegir.
Fjársvik kosta 3.500 milljarða dollara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 11:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.