27.4.2015 | 23:19
VR - Nýtt félag
- Á árum áður notuðu samtök atvinnurekenda í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum VR til að kljúfa verkalýðshreyfinguna í herðar niður.
* - Forystumönnum þessa félags var aldrei treystandi og allar viðkvæmar upplýsingar láku frá þeim yfir til samtaka atvinnurekenda og flokksins jafnóðum.
* - Upp komst um gríðarlega spillingu í VR í tengslum við lífeyrissjóðinn þegar hrunið var orðið að veruleika.
T.a.m. var VR í lykilstöðu er Bjarni Benediktsson þáverandi forsætisráðherra tókst að klúfa ASÍ vegna lífeyrissjóðamálanna á 7. áratugnum, ásamt örfáum öðrum félögum sem einnig voru að berjast með rekstur á lífeyrissjóðum sem allir börðust í bökkum.
Þetta var bara nýr skattur á launamenn og allir sjá það loks eftir hrunið á Íslandi. Enn hefur ekki verið gerð úttekt á þessu sjóðakerfi af hlutlausum aðilum vegna hrunsins.
En sameiginlegar kröfur ASÍ voru um að venjulegir félagar nytu eftirlauna í svipuðum mæli og opinberir starfsmenn og launafólk á norðurlöndunum. Það var aldrei gerð krafa um lífeyrissjóði.
Á fjölmörgum ögurstundum brugðust verslunarmenn ófaglærðum félögum sínum í öðrum félögum og voru jafnan tilbúnir að semja um lægri laun en aðrir. Enda voru þeir framarlega í þróun markaðslauna frá gamalli tíð.
- Nú er félagið greinilega breytt og virðist vera tilbúið að berjast fyrir hækkun á lægstu launatöxtum félagsins.
* - En innan þessa félags eru gríðarlega margir á ótrúlega lágum launum. Jafnvel á launum sem eru undir umsömdum lágmarkslaunum.
Viðræðum VR og SA slitið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt 28.4.2015 kl. 07:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.