Auðvitað fara hótelrekendur ekki að skipta sér af pólitík

  • Það yrði auðvitað sérkennileg vinnbrögð fyrirtækis af þessu tagi sem vill eiga viðskipti við allt sómakært fólk hvaðan sem það kemur og án þess að kanna fyrirfram hvaða skoðun það hefur á hinum og þessum málum.mariothótel

Ef frétt Framsóknar-DV væri rétt, væri auðvitað ástæða til þess að þessir hótelkallar hipjuðu sig strax úr landi. 

Það væri fráleitt að slíkir erlendir fjárfestar færu að skipta sér pólitík á Íslandi ef þeir ætla sér að  starfa á Íslandi. Hvort sem það er landspólitík eða sveitarstjórnarmál.

En samkvæmt  eftirfarandi frétt Mbl segir m.a.

„Áform um fjár­mögn­un hót­els­ins við Hörpu eru óbreytt. „Við lát­um öðrum eft­ir póli­tísk úr­lausn­ar­efni, hvort held­ur er á Íslandi eða á alþjóðleg­um vett­vangi. Sjálf­ur hef ég fulla trú á umb­urðarlyndi Íslend­inga og virðingu þeirra fyr­ir öllu fólki,

seg­ir Rich­ard L. Friedm­an, for­svarsmaður fjár­festa í Ed­iti­on Hotel Proj­ect, í yf­ir­lýs­ingu.

mariothótel2

Það er eins og móðursjúkir stjórnmálamenn á Íslandi skilji það ekki, að fyrirtæki eins og þetta sækist eftir því að starfa í lýðræðisríkjum þar sem eru frjáls skoðanaskipti.

  • Hnjáliðamýkt þessa stjórnmálafólks og minnimáttarkennd á engan rétt á sér.
    *
  • Einnig eru hundakúnstir sonar bílasalans undarlegar. Í frétt Mbl. í gær segir m.a.:


„Júlí­us Víf­ill Ingvars­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, hyggst á fundi borg­ar­ráðs á morg­un óska eft­ir öll­um gögn­um tengd­um und­ir­bún­ingi inn­kaupa­banns borg­ar­inn­ar á vör­ur frá Ísra­el. Hann tel­ur ljóst að und­ir­bún­ings­ferl­inu hafi verið veru­lega ábóta­vant og hyggst senda umboðsmanni Alþing­is er­indi um málið í kjöl­farið“.

  • Þetta er auðvitað afar kostulegt hjá manninum í jólafötunum. Það vill nefnilega þannig til að utanríkisstefna stjórnvalda tekur miklum breytingum frá einu ári til annars.
    *
  • Því er sveitarstjórnarmönnum ógjörlegt að sveiflast í vinnubrögðum eftir breytilegri stefnu stjórnvalda hverju sinni. Auk þess sem pólitísk stefna stjórnvalda hverju sinni eru ekki landslög. 

Síðan hafa innkaupamál borgarinnar ekkert með utanríkisstefnu stjórnvalda að gera.  Sem betur fer, búa íslendingar að mestu við pólitískt frelsi.

 


mbl.is Óbreytt áform um Hörpuhótel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband