20.1.2016 | 11:38
Sýnd veiði en ekki gefin
- Ekki hefur vöruverð lækkað í versluninni vegna afnáms á tollum og vörugjöldum sérstaklega.
Á nærri tveimur árum hefur núverandi ríkisstjórn fellt niður tolla og vörugjöld á fjölmörgum vörum. Einkum af vörum sem koma frá ýmsum Asíu-löndum.
Almenningur hefur ekki orðið var við að tilteknar vörur hafi lækkað í verði vegna þessara niðurfellinga.
Umfram það sem það hefði hvort sem er gerst vegna ákveðinna tilboða og hverskonar útsölu framboða í verslun þegar er verið að selja gamla lagera sem ekki seljast öðru vísi.
Það er frjáls álagning á innfluttu kjöti rétt eins og það er frjáls álagning á innlendu kjöti í smásölu.
Margoft hefur verið bent á þá staðreynd að mesta álagningin á kjöti á sér stað í smásöluversluninni. Breytir þá engu hvert söluverð frá afurðarstöð var.
- Það myndi spara marga milljarða fyrir almenning á ári hverju, ef eigendur fyrirtækjanna væru persónulega félagar í samtökum atvinnurekenda en ekki fyrirtækin.
* - Þá þyrftu launamenn ekki lengur að greiða félagsgjöld fyrirtækjanna í samtökum atvinnurekenda.
* - Þá þyrftu atvinnurekendur sjálfir að greiða sín félagsgjöld. Af launum sem þeir hafa greitt skatt af rétt eins og launafólk.
Gæti sparað neytendum 4 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:52 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.