30.1.2016 | 14:05
Barist er um völdin yfir fjármagninu
- Greinilegt virðist vera, að nú takist á flokkspólitískir hagsmunir
Sjálfstæðisflokksins við almenna félagsmenn í VR.
Það er að segja, Sjálfstæðismenn sem virðast hafa haft alla þræði í hendi sér varðandi fulltrúa atvinnurekenda í stjórnum lífeyrissjóðanna.
Nú getur verið að þeir séu að missa tangarhaldið á lífeyrissjóði verslunarmanna sem er einn af stærstu lífeyrissjóðum landsins.
Nú eru ekki lengur flokkshlýðnir stjórnarmenn frá VR í stjórn lífeyrissjóðsins.
Þannig að flokkurinn virðist vera að missa öll tök á samtökum verslunarmanna sem þeir höfðu haft frá upphafi þess er að félag Verslunarmanna í Reykjavík var breytt í félag launafólks að undanteknu einu ári.
Í bláupphafinu í upphafinu þegar vinstri maðurinn Jón Ólafsson var formaður í eitt ár. En Sjálfstæðisflokkurinn hreinsaði alla úr áhrifastöðum innan félagsins.
Flokkurinn missti tökin eftir að spillingin í félagsrekstrinum kom í ljós er tengdist auðvitað lífeyrissjóðnum. Þar voru peningarnir.
Kosning stjórnar LIVE verði ógilt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 14:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.