11.2.2016 | 11:48
Þar sem hrokinn tekur völdin
- Væntanlega fá yfirmenn Fellaskóla áminningu, því þetta háttarlag þeirra er til mikillar skammar.
Það er lágmarkskrafa að þeir sendi foreldrum þessa nemanda afsökunarbeiðni og einnig nemandanum sjálfum.
Best væri að skólastjóri og aðstoðarskólastjóri yrðu látnir heimsækja þetta fólk og biðjist persónulega afsökunar.
Tilkynni síðan á sal öllu skólasamfélaginu um að þeir hafi beðist afsökunar á háttarlagi sínu persónulega.
Skólinn ætti að vera ánægður með það, að foreldrar kjósi að senda börn sín með nesti í skólann á hverjum degi.
Því borgin telur sig niðurgreiða matinn verulega sem seldur er í mötuneytum grunnskólanna sem ekki er alltaf til fyrirmyndar, en þarf ekki að gera það vegna nemenda sem koma með nesti að heiman.
Fauk hressilega í borgarstjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 11:50 | Facebook
Athugasemdir
Dagur setur reglur og boðar niðurskurð
og svo allt í plati
Jón (IP-tala skráð) 11.2.2016 kl. 12:09
Borgarstjóri er reiður, borgin setur reglurnar veit hann það ekki? Veit hann hann ekki heldur hvað gerist þegar niðurskurður á leikskólum og grunnskólum sem hann fyrirskipaði verður að veruleika, þá á hann sko eftir að verða öskureiður. Einhver ætti að segja honum frá hækkuninni á gjaldskrá sundlauga í Reykjavík, því sundferðir voru eitt af því fáa sem efnalitlar barnafjölskydur gátu leyft sér. Sé fram á að Dagur verði hoppandi reiður allt kjörtímabilið sem eftir er.
Sólbjörg, 11.2.2016 kl. 12:48
Þar sem hrokinn tekur völdin (smá leiðrétting)
Það er lágmarkskrafa að borgarstjóri sendi foreldrum þessa nemanda afsökunarbeiðni og einnig nemandanum sjálfum.
Best væri að borgarstjóri og formaður skóla- og frístundasviðs yrðu látnir heimsækja þetta fólk og biðjist persónulega afsökunar.
Tilkynni síðan á sal öllu skólasamfélaginu um að þeir hafi beðist afsökunar á háttarlagi sínu persónulega.
Borgarstjóri ætti að vera ánægður með það, að foreldrar kjósi að senda börn sín með nesti í skólann á hverjum degi.
Því borgarstjórinn telur sig persónulega niðurgreiða matinn verulega sem seldur er í mötuneytum grunnskólanna sem ekki er alltaf til fyrirmyndar, en þarf ekki að gera það vegna nemenda sem koma með nesti að heiman.
Benedikt V. Warén, 11.2.2016 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.