14.2.2016 | 15:26
Þetta með lýðræðið
- Við íslendingar höfum gjarnan haft stór orð um réttarfarið í Rússlandi og í gömlu Sovetríkjunum sem alls ekki hefur verið eðlilegt að okkar mati.
Svona rétt eins og er í fasistaríkjum almennt þar sem niðurstöður eiga að taka mið af vilja stjórnvalda hverju sinni. Svipaða sögur höfum við sagt um réttarfar víða um heiminn þar sem svipað fyrirkomulag er í gangi.
Nú fellur frá íhaldsmaðurinn Antonin Scalia hæstaréttardómari í Bandaríkjunum sem var á níræðisaldri.
Það hljómar undarlega í lýðræðisríki, að dauði þessa eina manns geti haft veruleg áhrif á bandarískt samfélag í átt til lýðræðis og þar með stöðu og afstöðu Bandaríkjanna í heiminum.
Hann var ein dyggasta stoð íhaldsama meirihlutans í hæstarétti Bandaríkjanna og íhaldsafla í öfgakenndu bandarísku samfélagi .
Íhaldsmenn þar vestra gátu treyst á hann ef frjálslyndir virtist ætla að færast um of í aukana eins og t.d. í fóstureyðingamálum. .
Scalia hélt því sjálfur fram að hann horfði bara alltaf á bókstaf stjórnarskrárinnar en í reynd voru siðferðiskreddur strangtrúaðra (Zíonista) honum oft ekki síðri vegvísir.
Það getur orðið hlutskipti Obama að skipa frjálslyndan dómara sem gæti breytt miklu í þessu landi næstu ár og áratugi, en hæstaréttardómarar sitja gjarnan fram á grafarbakkann.
Þetta kemur íslendingum sérkennilega fyrir sjónir þar sem það hefur ekki verið verkefni Hæstaréttar á Íslandi að ráð því hvaða lög geta tekið gildi í landinu.
Þ.e.a.s., það á algjörlega að vera verkefni Alþingis að vera löggjafinn. Þetta fyrirkomulag í Bandaríkjunum er því lítið skárra en gerist í fasistaríkjum. M.ö.o. ekki lýðræðislegt.
Því vaknar spurningin um hvernig þessu er háttað á Íslandi. Það hefur mörgum þótt vera flokkspólitískur fnykur á meirihluta dómaranna við Hæstarétt Íslands.
Margir þeir sem hafa verið pólitískir baráttumenn t.d. í verkalýðshreyfingunni og fjölmörg stéttarfélög hafa átt erfitt með að treysta þessum dómstól vegna þess hvernig hann túlkar ýmis lög þegar kemur að hagsmunanúningi milli aðila í atvinnulífinu.
Það er auðvitað afar sérkennilegt, að herveldið sem fer um allar jarðir heimsbyggðarinnar og krefst þess að lýðræði sé ríkjandi um allar koppagrundir, en er ekki sjálft sérstaklega lýðræðislegt.
Meira í húfi eftir fráfall Scalia | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 16:33 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.