2.4.2016 | 12:20
Gamlir úreltir ryðkláfar íhaldsins sjá ekki spillinguna sem nú vex
- Björn sá hana heldur ekki fyrir hrunið
* - Kaldastríðs agentinn áttar sig ekki á því, að málið snýst ekki um kosningar
heldur það sem mikilvægast er, að segja þjóðinni frá spillingarliðunum á Alþingi.
* - Að stjórnarandstöðu flokkarnir geti sagt þjóðinni frá því, að þeir tilheyra ekki þessu spillingarliði
Minnihlutinn á Alþingi gerir sér engar grillur um að ríkisstjórnin segi af sér, það þyrfti þá kraftaverk að gerast svo slík réttlætissýn geti blossað upp í sinni flokksfélaga Björns Bjarnasonar.
- En bakland þessara stjórnmálaflokka sem nú halda um stjórnvölinn krefjast þess að stjórnin dugi fram í rauðan dauðan, vegna hagsmuna sinna.
Þetta snýst fyrst og fremst um, að minnihlutaflokkarnir eru að láta það bókfærast í bækur Alþingis, að þeir tilheyri ekki þessu spillingarliði sem sumir ráðherrarnir virðast vera hluti af.
- Þjóðin fær þá að vita það formlega.
En einn gamall félagi Björns hefur áttað sig á alvarleika málsins, eins og Styrmir Gunnarsson gamli ritstjóri Morgunblaðsins í áratugi og húsbóndi Björns sem var fyrst og fremst áróðursmeistari flokksins á blaðinu í Kalda stríðs áróðrinum sem varð skyndilega úreltur. Það var sérlega aumt hlutverk.
Pistill Styrmis á Pressunni er góður og fer hann líklega nálægt staðreyndum þessa máls.
Þessi pistill er a.m.k. miklu heiðarlegri en það sem Þorsteinn Pálsson lét frá sér fara um sama málefni í útvarpi. Þorsteinn virðist aldrei geta komið sér upp úr hjólförunum.
Það er einnig rétt ábend hjá Styrmi þegar hann segir:
,,Loks segir Styrmir að sýna verði ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sanngirni. Jóhanna hafi á sínum tíma notið mest trausts til að stjórna þjóðarskútunni og ríkisstjórn hennar stóð frammi fyrir yfirþyrmandi vandamálum sem þurfti að leysa strax. Þess vegna megi skilja að kraftar og athygli þeirrar ríkisstjórnar hafi ekki snúist um hinar dýpri sálrænu þarfir þjóðarinnar".
Það er auðvitað rétt, að ein ríkisstjórn sem auk þess var í raun minnihlutastjórn í marga mánuði hafði ekki nægilegt afl til að takast á við erfiðustu málin. Heldur ekki til að fara á dýptina.
Það má einnig benda á, að fylgi þessara fylkinga í atkvæðum í síðustu kosningum talið var um 51% og 49%. Eiginlega minnsti mögulegi munur. Þingmannafjöldinn fór á núverandi stjórnarflokka vegna hinnar gríðarlegu tvístrunar sem varð á framboðum á vinstri vængnum.
Almenningur hefur orðið vitni að því, að gamli spillingargrauturinn er kominn upp á yfirborðið á nýjan leik og eldri þingmenn eru komnir sömu hagsmuna-baráttuna og áður fyrir hina og þessa sem eiga stór erlend fyrirtæki.
Það má m.á. sjá á tjónkun þeirra við þessi fyrirtæki er snertir t.d. virkjanna- og skattamál. Hver spræna skal virkjuð í þágu þessara aðila.
Langflestir klækjarefirnir virðast hafa náð vopnum sínum á ný, þar sem þeim stærstu hafði verið gefið tækifæri til að komast undan með þá peninga sem voru voru geymdir í gjaldþrota bönkunum til skattaparadísaeyja. En almenningur sat eftir með skuldir þessara aðila við bankanna.
Þegar svo í ljós kemur að forystumenn eru með fé í skattaskjólum og sitja beggja megin við samningaborðin þegar tekist er á við hrægammanna og skattsvikaranna er í raun öllum lokið.
Þetta er auðvitað fyrst og síðast spurning um siðgæði og heiðarleika sem verður að gera kröfur um að stjórnmálamenn séu með í lagi og uppfylli.
Þingrofstillögunni vísað frá? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 12:41 | Facebook
Athugasemdir
*
*
*
*
*
Kristbjörn Árnason, 2.4.2016 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.