2.4.2016 | 13:29
Þeir beygja sig fyrir Bakkusi Kópavogsbúar.
- Nú krjúpa Kópavogsbúar í stórum stíl við fótskör Bakkusar
* - En nú ku vera rekin vínbúð á þeim slóðum sem ég var m.a. í heyskap í gamla daga.
* - Þá var þetta bara í sveit og allt afar notarlegt.
* - Er þessi hnjáliðamýkt ekki merki þess að allt fer hnignandi á þessu svæði?
* - Andrés Kristjánsson fyrrum ritstjóri og íbúi þarna á næstu grösum fann upp hugtakið hnjáliðamýkt.
* - En það átti reyndar við um annann aumingjaskap .
* - Á freystingum gæt þín kæri Kópavogsbúi.
* - Kveðja, fyrrum frumbyggi í Kópavogi
* - Nú hafa um skeið ýmsir stjórnmálamenn lagt á sig mikið erfiði, við að fá þingmenn á Alþingi til að samþykkja þá framför að sagt er.
* - Að sett verði í lög að kaupmenn megi setja upp slíkar grátur í matvöruverslanir um land allt.
* - Allt til að auka frelsi almennings og bæta menninguna í landinu.
* - En þeir sem ekki geta kropið sökum slits í hnjáliðum mega standa til að njóta.
* - Enda sýni þeir skriflegt undanþáguplagg frá yfirvöldum með stimpli miklum.
* - Lagt er til í greinargerð að þeir sem liggja á maganum með framréttar fyrir framan gráturnar með mikilli lotningu fyrir Bakkusi fái sérstaka viðurkenningu.
* - Lagt er til að hver verslun sýni skapandi hugmyndafræði um hvernig hver og ein búð verðlaunar slíka trúmenn.
* - Heimilt er að fá íslenska hönnuði til að taka þátt í tillögugerð um umbun
Á fjórum fótum í Vínbúðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Kjaramál | Breytt s.d. kl. 14:15 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.