Furðulegur barlómur í Samfylkingunni

  • Samfylkingin er nauðsynleg í íslensku flokkakerfi.
    *
  • Það er mikilvægt að stefnumál flokkanna í heild sinni nái yfir allt hið pólitíska litróf lýðræðislegra viðhorfa í stjórnmálum.
    *
  • Það er einmitt sú fjölbreytni sem er nauðsynleg fyrir þjóðina. Í því litrófi er Samfylkingin nauðsynleg.

1. maí 2015

Það eru ansi miklar alhæfingar að segja að vandamál séu almenn hjá jafnaðarmannaflokkum í Evrópu. 

Það er alveg eins og að segja það að verkalýðshreyfingin væri ekki nauðsynleg og flokkar sem henni tengjast. 

Eins og umræða margra þreyttra karla einkennist af í þessum flokki. Kanski þarf bara að skipta um fólk i brúnni og fá annað sem er baráttuglaðara og frjórra.

En það er örugglega bæði erfiðara og vandasamara að vera jafnaðarmaður í nútímanum en var fyir 50 árum. 

Þegar það er verið að skapa jöfnuð með lýðræðislegum vinnubrögðum tekur það óneitanlega mikinn tíma. Það gerist ekki eins og að smella á einn takka eða merki á skjá tölvunnar. 

En þannig vill fólk hafa hlutina í dag og það er þekkt að almennir kjósendur láta blekkjast af gylliboðum. En það eru vinnubrögð sem sómakærir stjórnmálaflokkar geta ekki verið þekktir fyrir.

Sömu vandamálin eru t.d. uppi í vandasömu handverki. Það tekur alltaf  langan tíma og í slíku námi eru nemendur gjarnan óþolinmóðir. Sama má segja um almenning. Þeir vilja gjarnan kaupa ódýra patentlausn frá Kína sem hefur stuttan líftíma. Enda verður hluturinn fljótt úreltur.

Það sama á við um pólitískar lausnir, þær þurfa að hafa stutt ákvörðunarferli en vera samt lýðræðislega teknar og þurfa ekki að duga í áratugi. Gera verður ráð fyrir því að árangur af félagslegum lausnum séu fljótari að sýna áþreifanlegan árangur.


mbl.is „Því miður fyrir ykkur, strákar mínir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband